Leik­hóp­urinn Lotta á Vopna­firði

19. júlí 2025

Leik­hóp­urinn Lotta stígur á stokk nítj­ánda sumarið í röð og býður börnum og fjöl­skyldum um allt land sprúðlandi skemmtun í formi nýrrar uppfærslu á söng­leiknum Hrói Höttur.
Hrói Höttur er eitt vinsæl­asta leik­verk Lottu fyrr og síðar. Nú eru liðin ellefu ár frá því að það var frum­sýnt í fyrsta sinn, og því sann­ar­lega tilefni til að dusta af því rykið – nú er það tilbúið í ferskum og breyttum búningi fyrir bæði gamla og nýja áhorf­endur. Eins og Leik­hóp­urinn Lotta er hvað þekkt­astur fyrir, er hér á ferð­inni ævin­týra­kokteill þar sem sögunni um Hróa Hött er blandað saman við annað þekkt ævin­týri – að þessu sinni syfjuðu prins­essuna Þyrnirós.
Í bland við skemmtileg lög, fjöruga dansa, full­orð­ins­brandara og góðan skammt af aula­húmor verður til full­komin skemmtun fyrir alla aldurs­hópa.
Áhorf­endur fá að kynnast Hróa Hetti og trúföstu vinum hans, Þöll og Þyrnirós, sem berjast fyrir rétt­læti í Ævin­týra­skóg­inum. Persónur á borð við Jóhann prins, illgjarnan fógeta, Tomma litla og álfkonur skjóta einnig upp koll­inum í þessari kraft­miklu og fjörugu sýningu og lofar Lotta góðri skemmtun fyrir alla fjöl­skylduna.
Sýningin er klukku­tími að lengd og fer fram utan­dyra. Við hvetjum gesti til að klæða sig eftir veðri, koma með nesti, teppi og góðan ævin­týra­anda. Það er líka gott að hafa símann vel hlaðinn því eftir sýningu gefst áhorf­endum kostur á að fá mynd af sér með sinni uppá­halds ævin­týra­per­sónu.

Miða­verð er 3,900 kr. (frítt fyrir tveggja ára og yngri) og hægt er að kaupa miða á staðnum og á tix.is.

Viðskipta­vinir í Stofni hjá Sjóvá fá 2 fyrir 1 af hverjum miða.
________________________________________
Leik­stjórn: Ágústa Skúla­dóttir
Leik­arar: Andrea Ösp Karls­dóttir, Anna Berg­ljót Thor­ar­ensen, Rósa Ásgeirs­dóttir, Sigsteinn Sigur­bergsson og Stefán Bene­dikt Vilhelmsson
Leik­skáld: Anna Berg­ljót Thor­ar­ensen
Höfundar tónlistar: Baldur Ragn­arsson, Björn Thor­ar­ensen, Rósa Ásgeirs­dóttir, Þórður Gunnar Þorvaldsson, Stefán Bene­dikt Vilhelmsson, Andrea Ösp Karls­dóttir, Sumarliði V. Snæland Ingimarsson
Höfundur laga­texta: Sævar Sigur­geirsson
Hljóð­blöndun tónlistar: Axel „Flex“ Árnason
Hljóð­blöndun á sýningum: Þórður Gunnar Þorvaldsson
Búninga­hönnun: Kristína R. Berman, Rósa Ásgeirs­dóttir og leik­hóp­urinn
Dans­höf­undur: Ágústa Skúla­dóttir & leik­hóp­urinn
Leik­mynda­hönnun: Andrea Ösp Karls­dóttir og Sigsteinn Sigur­bergsson
Leik­munir: Leik­hóp­urinn