Ágúst á ferð­inni: Tónlist­ar­dagur

20. maí kl. 18:00

Mikligarður

Í sumar heldur Ágúst Brynj­arsson tónleikaröð um Ísland undir heitinu Ágúst á ferð­inni og þann 20. maí kemur hann til Vopna­fjarðar!

Með nýút­gefna plötu í farteskinu og sem nýr brekku­söngvari Þjóð­há­tíðar í Vest­manna­eyjum vill Ágúst nýta tæki­færið og halda sérstakan menn­ing­ardag í bæjar­fé­lögum víðs vegar um landið ásamt hljóm­sveit sinni.

Yfir daginn mun Ágúst heim­sækja nokkra vel valda staði á Vopna­firði með gítarinn sinn og klukkan 18:00 verða fjöl­skyldu­tón­leikar í félags­heim­ilinu. Aðgangur er ókeypis í boði Brims og Vopna­fjarð­ar­hrepps.

Tónleik­arnir standa í um 60 mínútur og henta því öllum aldurs­hópum. Á dagskránni verður blanda af eigin lögum Ágústs ásamt vinsælum barna- og brekku­söngslögum þar sem gestum gefst tæki­færi til að syngja með.