Athugið að þessi viðburður er liðinn

Deili­skipulag miðhluta hafn­ar­svæðis: kynning tillögu á vinnslu­stigi

6. júlí kl. 16:00

Mikligarður

Miðbraut 1

Sveit­ar­stjórn Vopna­fjarð­ar­hrepps auglýsir hér með opið hús þar sem íbúar geta kynnt sér drög að breyt­ingu á deili­skipu­lagi fyrir miðhluta hafn­ar­svæðis á Vopna­firði, skv. ákv. gr. 4.6.1 í skipu­lags­reglu­gerð.

Skipu­lagstil­lagan er kynnt á vinnslu­stigi í samræmi við 4.mgr. 40 gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010.

Brim hf., eigandi fisk­vinnsl­unnar á Vopna­firði, hefur í hyggju að reisa nýja og stærri uppsjáv­ar­vinnslu á hafn­ar­bakka Vopna­fjarð­ar­hafnar. Ekki er gert ráð fyrir þeirri uppbygg­ingu í núgild­andi deili­skipu­lagi hafn­ar­svæð­isins. Stækk­unin er háð leng­ingu á lönd­un­ar­bryggj­unni og land­fyll­ingu en gert er ráð fyrir þeirri stækkun í deili­skipu­laginu.

Gild­andi deili­skipulag hafnar- og miðsvæðis á Vopna­firði er stað­fest 17. janúar 2020.

Tillagan verður kynnt á opnum fundi í Mikla­garði á Vopna­firði, þriðju­daginn 6. júlí n.k.  kl. 16:00.

Almenn­ingi verður gefinn kostur á að koma með ábend­ingar á kynn­ing­unni og/eða senda inn ábend­ingar til skipu­lags- og bygg­ing­ar­full­trúa  Vopna­fjarð­ar­hrepps Hafn­ar­götu 28, 710 Seyð­is­firði eða á netfangið sigurdur.jonsson@efla.is  til og með 20. júlí 2021.

Hægt er að nálgast drög að breyt­ing­ar­til­lögu á skrif­stofu Vopna­fjarð­ar­hrepps að Hamra­hlíð 15, Vopna­firði.

Hver sá, sem eigi gerir athuga­semdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest, telst samþykkur henni.