Eins og alltaf býður hópurinn upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem saman koma söngur, gleði, dans og húmor fyrir unga sem aldna.
Sýningaplan sumarsins má finna á www.leikhopurinnlotta.is.
Sýningin er um klukkustund að lengd og fer fram utandyra. Við hvetjum gesti til að klæða sig eftir veðri, taka með sér nesti, teppi og góðan ævintýraanda. Einnig er gott að hafa símann vel hlaðinn, því að sýningu lokinni gefst áhorfendum kostur á að taka mynd með sinni uppáhalds ævintýrapersónu.
Miðaverð er 4.900 kr. (frítt fyrir tveggja ára og yngri) og hægt er að kaupa miða á staðnum og á tix.is.
Viðskiptavinir í Stofni hjá Sjóvá fá 2 miða á verði 1.
Sýningin er styrkt af sveitarfélaginu Vopnafjarðarhreppi.
________________________________________
Um sýninguna
Litaland segir frá grunnlitunum gulum, rauðum og bláum – eða Gulverjum, Rauðingjum og Bláungum. Hver litur byggir sinn eigin heim í Litalandi og í upphafi eru samskipti milli heimanna lítil, enda vill hver litur halda sig út af fyrir sig.
Fljótlega dregur þó til tíðinda. Bláungar neyðast til að leita skjóls hjá Gulverjum í Gulheimum, þar sem heimur þeirra bláu er að hverfa og þeir standa eftir án samastaðar. Sú viðkvæma staða leiðir til spennandi og ófyrirsjáanlegrar framvindu.
Leikskáld: Anna Bergljót Thorarensen
Höfundar lagatexta: Sævar Sigurgeirsson & Baldur Ragnarsson
Hljóðblöndun: Þórður Gunnar Þorvaldsson
Leikmyndahönnun: Andrea Ösp Karlsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson
Leikmunir: Leikhópurinn
Anna Bergljót Thorarensen – Glódís, Ástrós, Marín
Rósa Ásgeirsdóttir – Rjóð, Aldin, Særún
Sumarliði V Snæland Ingimarsson – Geisli, Blær, Hjörtur þjónn
Stefán Benedikt Vilhelmsson – Afi gamli, Rósmundur