Veit­inga­staðir

Veit­inga­staðir við allra hæfi eru í boði í Vopna­firði, í sveit og í bæ.

(Upplýs­ing­arnar eru birtar með fyrir­vara um breyt­ingar og þjón­ustu­tíma stað­anna.)

Aldan#aldan

Á korti
Opið allt árið

Aldan er sölu­skáli og er þar boðið upp á ýmsan heitan mat. Þar má fá eldbak­aðar pizzur,  hamborgara og samlokur af grillinu sem má gæða sér á í veit­ingasal stað­arins.  Tilkomu­mikið útsýni er úr veit­inga­salnum yfir Skála­nes­víkina.

Á Öldunni má einnig kaupa helstu nauð­synja­vörur, bensín og bíla­vörur.

Gest­gjafar: Sigur­björg og Jörgen
Heim­il­is­fang: Kolbeins­götu 35
Sími: 473 1603
Face­book síða

Hjáleigan#hjaleigan

Á korti
Opið á sumrin

Kaffi­húsið Hjáleigan er við Minja­safnið á Bust­ar­felli í Vopna­firði. Eftir safna­ferðina er nota­legt að setjast niður á kaffi­húsinu Hjáleig­unni og fá sér ljúf­fengt kaffi og gómsæta köku í frið­sælu umhverfi sveita­sæl­unnar. Við hlið kaffi­hússins er lítil húsdýragirðing þar sem börn og full­orðnir geta komið við og látið vel að dýrunum í sveit­inni.

Heim­il­is­fang: Bust­ar­fell
Netfang: bust­ar­fell@simnet.is
Face­book síða

Síreksstaðir#sireksstadir

Á korti
Opið á sumrin. Annar tími eftir samkomu­lagi.

Á Síreks­stöðum er veit­inga­staður sem ber nafnið Hjá okkur. Á boðstólum eru afurðir frá bænum og úr héraði.

Tekið er á móti allt að 30 manna hópum. Panta þarf máls­verði fyrir­fram fyrir hópa.

Gest­gjafar: Karen Hlín og Sölvi Kristinn
Heim­il­is­fang: Síreks­staðir
Símar: 848 2174
Netfang: sirek@simnet.
Vefsíða
Face­book-síða

Uss — Bistro & Bar#uss-bistro-bar

Á korti
Opið allt árið

Uss — bistro & bar er veit­inga­staður með asísku ívafi þar sem kokk­urinn á rætur að rekja til Tælands og sækir innblástur sinn á heima­slóðir. Þeir sem eru hrifnir af asískum mat ættu ekki að láta þannan stað framhjá sér fara en flestir ættu að finna eitt­hvað við sitt hæfi.

 

Gest­gjafar: Selja og Helga Kristín
Heim­il­is­fang: Kaup­vangur – Hafn­ar­byggð 4a
Sími: 866 7487
Netfang: uss.bistro@gmail.com
Face­book síða