Þessi viðbragðsáætlun á að þjóna þeim tilgangi að vera stjórnendum Vopnafjarðarhrepps til stuðnings um það hvernig takast eigi á við afleiðingar neyðarástands sem kann að ógna lífi og heilsu almennings, umhverfi og/eða eignum.
Viðbragðsáætlun þessari er ætlað að segja fyrir um viðbrögð innan Vopnafjarðarhrepps í kjölfar heimsútbreiðslu inflúensu/COVID-19.
1. útgáfa, 19. mars 2020
Inngangur#inngangur
Áætlunin miðast við að starfsemi sveitarfélagsins verði skert og að hluti starfsfólks verði rúmfastur vegna veikinda eða í sóttkví í ákveðinn tíma. Markmið áætlunarinnar eru að stuðla að öryggi starfsmanna og órofnum rekstri sveitarfélagsins á meðan á faraldrinum stendur.
Við gerð áætlunarinnar er meðal annars stuðst við lög um almannavarnir nr. 82/2008 og lög um sóttvarnir nr. 19/1997. Notast var við fyrirmynd af viðbragðsáætlun Norðurþings og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Einnig er stuðst við sniðmát að viðbragðsáætlun fyrir stjórnarráðið sem gert var í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti sóttvarnalæknis. Ekki er um endanleg fyrirmæli að ræða og getur sveitarstjóri ákveðið breytta starfstilhögun með tilliti til ástands og aðstæðna hverju sinni.
Ábyrgð á áætlun þessari er í höndum sveitarstjóra Vopnafjarðarhrepps og skal hún endurskoðuð reglulega, en yfirfarin árlega. Ef miklar breytingar verða á starfsemi Vopnafjarðarhrepps skal áætlunin þegar í stað endurskoðuð.
Á vef embættis landlæknis má finna leiðbeiningar til starfsmanna um einkenni inflúensu og leiðir til að draga úr hættu á smiti.
Áætlunin skal kynnt fyrir starfsmönnum og er vistuð í skjalavistunarkerfi Vopnafjarðarhrepps. Áætlun þessi tekur þegar gildi.
Virkjun viðbragðsáætlunar og viðbragðsteymi Vopnafjarðarhrepps#virkjun-vidbragdsaaetlunar-og-vidbragdsteymi-vopnafjardarhrepps
Ákvörðun Ríkislögreglustjóra um almannavarnastig vegna heimsfaraldurs gildir um virkjun þessarar áætlunar. Sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps að höfðu samráði við hreppsráð ber ábyrgð á að tilkynna starfsfólki Vopnafjarðarhrepps um að virkja viðbragðsáætlunina. Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps, Samband íslenskra sveitarfélaga og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið skulu einnig upplýst um það.
Í viðbragðsteymi Vopnafjarðarhrepps eru Sara Elísabet Svansdóttir, sveitarstjóri og hreppsráð Vopnafjarðarhrepps: Sigríður Bragadóttir, formaður, Íris Grímsdóttir og Björn Heiðar Sigurbjörnsson.
Viðbragðsteymið gætir þess að sveitarfélagið búi yfir nýjustu upplýsingum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis um stig faraldursins. Annast eftirfylgni við leiðbeiningar til starfsmanna varðandi fyrirkomulag á vinnustað auk sótthreinsibúnaðar og umgengisreglna. Sviðsstjórar sjá um samskipti við starfsfólk hver á sínu sviði vegna veikinda og fjarveru og ber þeim að upplýsa viðbragðsteymi um veikindi sem koma upp sökum faraldursins.
Sveitarstjóri skal upplýsa starfsfólk um leið og ljóst er að ekki þarf allar þær bjargir sem virkjaðar eru samkvæmt áætluninni.
Starfsheiti | Nafn | Símanúmer | Staðgengill | Símanúmer |
---|---|---|---|---|
Sveitarstjóri | Baldur Kjartansson | 820 6861 | ||
Fjármálastjóri | Baldur Kjartansson | 820 6861 | ||
Oddviti | Axel Örn Sveinbjörnsson | 844 1112 | Aðalbjörg Ösk Sigmundsdóttir | 866 4421 |
Skólastjóri grunnskóla | Sigríður Elva Konráðsdóttir | 8489768 | Svava Birna Stefánsdóttir | 864 1342 |
Leikskólastjóri | Sandra Konráðsdóttir | 862 1430 | Halldóra Sigríður Árnadóttir | 895 9928 |
Hjúkrunarstjóri Sundabúðar | Emma Tryggvadóttir | 860 6815 | Íris Grímsdóttir | 691 2504 |
Yfirmaður þjónustumiðstöðvar | Þráinn Hjálmarsson | 835 1430 | ||
Forstöðumaður íþróttahúss | I. Hrönn Róbertsdóttir | 848 6666 | ||
Forstöðumaður bókasafns | Margrét Gunnarsdóttir | 861 5948 | ||
Skólastjóri tónlistarskóla | Stephen John Yates | 858 1916 | Baldvin Eyjólfsson | 898 6304 |
Varðstjóri slökkviliðs Vopnafjarðar | Björn Heiðar Sigurbjörnsson | 861 3410 | Hreiðar Geirsson | 894 9866 |
Yfirmaður sjúkrabíls | Hreiðar Geirsson | 894 9866 | Björn Heiðar Sigurbjörnsson | 861 3410 |
Launafulltrúi | Sara Jenkins | 864 3523 | Baldur Kjartansson | 820 6861 |
Starfsmaður lyfsölu | Karin Bach | 846 5480 | ||
Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs | Júlía Sæmundsdóttir | 820 3721 | Helga Guðmundsdóttir | 863 3656 |
Áhættumat Vopnafjarðarhrepps#ahaettumat-vopnafjardarhrepps
Sóttvarnalæknir hefur gert bráðabirgðamat á afleiðingum yfirvofandi heimsfaraldurs þar sem tillit er tekið til afleiðinga. Ef COVID-19 veiran nær útbreiðslu hér á Vopnafirði er líklegt að fjarvistir frá vinnu verði nokkrar. Mögulega má búast við að veikindi verði meira langvarandi en í árlegum inflúensufaraldri.
Fjarvistir starfsmanna geta stafað af mismunandi ástæðum, til dæmis vegna:
- Smits af völdum kórónaveiru.
- Annarra veikinda.
- Annarra fjölskyldumeðlima sem þarf að hugsa um, vegna veikinda eða lokun leikskóla og skóla.
- Beiðna vinnuveitanda um að halda sig fjarri vinnustað og vinna heiman frá sér.
- Beiðna heilbrigðisyfirvalda um heft ferðafrelsi eða samkomubann.
- Raskana á almenningssamgöngum eða ótta starfsmanna við að ferðast innan um hóp fólks.
- Ótta starfsmanna við að smitast ef þeir mæta til vinnu.
Ekki er hægt að spá fyrir með vissu hverjar fjarvistir á vinnustöðvum verða. Það veltur m.a. á því um hversu skæða farsótt er að ræða, hvernig starfsfólk metur hættuna, hvort skólum er lokað og til hvaða ráða er tekið í viðbrögðum vinnustaða í þeim tilgangi að minnka líkur á fjarvistum og smiti innan vinnustaðarins.
Upplýsingaskylda starfsmanna um eigin heilsu#upplysingaskylda-starfsmanna-um-eigin-heilsu
Öllum starfsmönnum er skylt að láta næsta yfirmann vita ef að:
- Viðkomandi hefur komið erlendis frá. Frá og með fimmtudeginum 19.mars 2020 er Íslendingum og öðrum með búsetu á Íslandi sem koma til landsins skylt að fara í tveggja vikna sóttkví án tillits til hvaðan þeir eru að koma, sjá hér.
- Viðkomandi hefur komist í snertingu eða návígi við einstakling sem er með eða grunaður er um að vera með Covid-19 vírusinn. Eða einstakling sem er í sóttkví eða einangrun.
- Viðkomandi hefur undanfarna 14 daga haft einkenni hósta, hita eða öndunarerfiðleika.
- Við viljum forðast í lengstu lög að heill vinnustaður lendi í sóttkví.
Ef grunur er um sýkingu af völdum COVID-19 skal upplýsa yfirmann, hann bregst við á eftirfarandi hátt:
Ef grunur vaknar, hringið strax í 1700.
Ef málið þolir enga bið, hringið í 112 og óskið eftir sjúkraflutningi.
Vakthafandi læknir/sjúkraflutningamaður ber ábyrgð á framkvæmd áhættumats vegna gruns um COVID-19 sýkingu í samráði við umdæmislækni sóttvarna og sóttvarnalækni, vaktsími sóttvarnalæknis er 510 1933 og einnig vakthafandi smitsjúkdómalækni á Landspítala í gegnum skiptiborð 543 1000.
Aðgerðir til að viðhalda rekstri og stuðla að öryggi starfsfólks#adgerdir-til-ad-vidhalda-rekstri-og-studla-ad-oryggi-starfsfolks
Sveitarstjóri og hreppsráð skulu hafa umsjón með að vakta daglega hver tilmæli almannavarna og sóttvarnalæknis eru, eftir að viðbragðsáætlun hefur verið virkjuð, t.d. á vefsíðum eins og landlaeknir.is og almannavarnir.is. Sveitarstjóri skal sjá um að koma fréttum og skilaboðum áleiðis til alls starfsfólks Vopnafjarðarhrepps með tölvupóstsendingum. Mikilvægar leiðbeiningar og reglur fyrir starfsfólk sem kunna að breytast frá degi til dags verða sendar starfsmönnum jafnóðum með tölvupósti. Einnig verða þær hengdar upp í kaffistofu og sameiginlegum rýmum starfsfólks.
Launafulltrúi skal halda utan um fjarvistir starfsmanna daglega, skrá niður ástæður fjarvista og áætla a.m.k. 14 daga í fjarvistir starfsmanna sem hafa greinst með inflúensu og allt að 14 daga ef starfsmaður er í sóttkví.
Ráðstafanir til að fækka smitleiðum
Hægt er að fækka smitleiðum innan Vopnafjarðarhrepps með því að:
- Fækka staðbundnum fundahöldum tímabundið.
- Nýta fjarfundabúnað fyrir fundi í auknum mæli.
- Breyta framkvæmd ræstinga þannig að aukin áhersla verði lögð á að strjúka af hurðahúnum, slökkvurum, símum, lyklaborðum, borðum og stólörmum.
Sé lýst yfir neyðarstigi almannavarna gilda reglur um starfsemi Vopnafjarðarhrepps.
Deildarstjórar tryggja birgðir á hreinlætisvörum eins og sápu, sótthreinsispritti, handþurrkum, ræstingavörum o.þ.h. og pantar inn á lager, ef til þess kæmi að birgjar loka. Eins þarf að skoða hvort þörf er á tíðari þrifum. Þá kanna þeir stöðu á öðrum rekstrarvörum eins og t.d. pappír og prenthylkjum.
Í faraldri skal starfsfólk lágmarka fundahöld og funda eingöngu ef nauðsyn krefur. Gildir þetta jafnt um fundi innan sem utan sveitarfélagsins. Notast skal meira við síma og tölvur til samskipta eins og frekast er unnt og fyrirmælum sóttvarnarlæknis fylgt eftir því sem við á.
Sveitarfélagið fylgir fyrirmælum sóttvarnalæknis hverju sinni varðandi ferðalög innanlands sem utan. Taka skal tillit til þess ef fólk vill síður ferðast innan um aðra þegar faraldur stendur yfir. Hafa verður einnig í huga að flugvellir og landamæri geta lokast vegna heimsfaraldurs.
Um veikindaleyfi og umönnunarleyfi starfsfólks gilda ákvæði kjarasamninga. Sveitarstjóri getur þó gefið út rýmri reglur hvað þetta varðar telji hann nauðsynlegt að mæta þörfum starfsfólks vegna umönnunar barna eða náinna ættingja.
Tryggja þarf að fleiri en einn starfsmaður geti gengið í störf annarra starfsmanna þar sem metin er þörf á því. Starfsfólk getur átt von á að vera fært til milli starfa til að sinna verkefnum sem hafa forgang í inflúensufaraldri.
Bjóða upp á að starfsmenn sinni vinnu sinni frá heimili sínu þar sem starfsmenn eru með aðgang sem tengir þá við tölvukerfið utanhúss og geta því unnið utan skrifstofunnar. Starfsmönnum verður heimilt að taka vinnu með sér heim og vinna heima eða semja um sveigjanlegan vinnutíma við viðkomandi sviðsstjóra.
Sveitarstjóri getur hvenær sem er ákveðið að breyta fyrirkomulagi á þjónustu á vegum sveitarfélagsins til að draga úr smithættu eða til að mæta breyttum aðstæðum innan Vopnafjarðarhrepps meðan á inflúensufaraldrinum stendur. Breytt fyrirkomulag getur falist í því að stytta opnunartíma eða að loka afgreiðslu þannig að öll samskipti við viðskiptavini fari fram símleiðis eða með tölvupóst- og bréfasamskiptum. Breytingar á opnunartíma eða fyrirkomulagi á afgreiðslu við viðskiptavini þarf að kynna á fullnægjandi hátt, t.d. með auglýsingum í fjölmiðlum, upplýsingum á heimasíðu og merkingum við inngang t.d. hafi honum verið læst.
Eyðing smitefnis
Á kórónaveirur og inflúensuveirur virkar eftirfarandi:
- hreinsun með vatni og sápu
- hitun í 40°C í 15 mínútur; 80°C í 3 mín; 90°C í 1 mínútu
- spritt (a.m.k. 40% styrk)
- ísóprópanóli ( a.m.k. 30% styrk)
- klórlausnum (a.m.k. 200 ppm styrk)
- joðefnum (a.m.k. 75 ppm styrk)
Sóttvarnabúnaður sem sveitarfélagið þarf að eiga auk hefðbundinnar sápu:
- bréfþurrkur og e.t.v. fleiri ruslafötur sem eru með loki
- handspritt
- spritt til hreinsunar á yfirborði, svo sem símum og hurðarhúnum
- einnota hanskar fyrir ræstinguna
Heilsufarsleg atriði starfsfólks og inflúensueinkenni/einkenni Covid-19
- Starfsfólk fylgist með eigin heilsu og fer heim ef þeir finna fyrir einkennum. Ekki skal fara á heilsugæslu heldur hringja eftir aðstoð.
- Starfsfólk á ekki að koma til vinnu ef þeir eru veikir og er ráðlagt að vera heima frá því einkenna verður vart og í 10 daga frá því að sótthiti er horfinn.
- Starfsfólks sem mætir til vinnu veikt, er umsvifalaust sent heim en í almennum sóttvarnarráðstöfunum samkvæmt sóttvarnalögum nr. 19/1997 felst að hver sá sem telur sig smitaðan af smitsjúkdómi hefur þá skyldu að fara varlega og gera sér far um að smita ekki aðra.
Gátlisti viðbragðsteymi Vopnafjarðarhrepps#gatlisti-vidbragdsteymi-vopnafjardarhrepps
Þennan gátlista skal sveitarstjóri sjá um að lykilstarfsmenn fái ásamt ítrekun um að grípa til viðeigandi ráðstafana þegar breytingar verða á hættustigi almannavarna. Einnig skulu deildarstjórar sjá um að prenta út/fjölrita og hengja upp í vinnustöðum og hafa þar frá virkjun áætlunarinnar til afboðunar. Sveitarstjóri sendir starfsfólki boð um hættustig almannavarna og ítrekar við starfsfólk að fylgja viðeigandi stigi gátlista viðbragðsáætlunar.
Óvissustig
- Viðbragðsáætlun lesin og uppfærð. Allt starfsfólk upplýst um viðbragðsáætlunina
- Sveitarfélagið leitar nýjustu upplýsinga um stöðu mála hjá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og hjá sóttvarnalækni.
- Upplýsingar um lykilstarfsmenn Vopnafjarðarhrepps og staðgengla uppfærðar ef þarf.
- Útnefning/skilgreining öryggisvarðar og annarra er skipa viðbragðsstjórn Vopnafjarðarhrepps.
- Sveitarstjóri sér um að starfsmenn séu upplýstir um ofangreinda þætti.
Hættustig
- Sveitarfélagið uppfærir upplýsingar um stöðu mála að höfðu samráði við Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og sóttvarnalækni.
- Sveitarfélagið leitast við að stemma stigu við útbreiðslu faraldursins og sendir skilaboð til starfsmanna um aðgát.
- Innkaup á nauðsynlegum birgðum.
- Framkvæmd rekstrarlegra þátta skv. kafla 5 undirbúin.
- Upplýsingum og fræðslu vegna sóttvarna komið til starfsmanna.
Neyðarstig
- Upplýsingar um stöðu mála stöðugt uppfærðar í samráði við Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og sóttvarnalækni.
- Aðgerðum vegna rekstrarlegra þátta samkvæmt kafla 5 hrint í framkvæmd.
-
Aðgerðum vegna sóttvarna samkvæmt kafla 5 hrint í framkvæmd.
Einkenni Kórónaveiru (COVID-19)#einkenni-koronaveiru-covid-19
Einkenni líkjast helst inflúensusýkingu, hósti, hiti, bein- og vöðvaverkir og þreyta. COVID-19 getur einnig valdið alvarlegum veikindum með neðri öndunarfærasýkingu og lungnabólgu, sem koma oft fram sem öndunarerfiðleikar á 4.–8. degi veikinda. Ef einstaklingar finna fyrir veikindum er þeim bent á að hringja í síma 1700 (fyrir erlend símanúmer +354 544-4113) varðandi nánari upplýsingar og hvernig þeir eigi að nálgast heilbrigðiskerfið.
Veikir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á heilsugæslustöðina nema að fengnum ráðleggingum í síma. Einstaklingar með grunsamlega eða staðfesta sýkingu verða settir í einangrun skv. nánari leiðbeiningum. Einkennalausir einstaklingar sem hafa verið í samneyti við einstaklinga með staðfesta eða líklega sýkingu verða settir í sóttkví skv. nánari leiðbeiningum.
Sóttvarnalæknir vill hvetja einstaklinga á ferðalögum erlendis, sérstaklega í Kína að:
•Gæta vel að almennu hreinlæti, sérstaklega handþvotti
•Forðast náið samneyti við einstaklinga sem eru með hósta og almenn kvefeinkenni.
•Forðast samneyti við villt dýr eða dýr á almennum mörkuðum.
•Nota pappír fyrir vit við hnerra þegar um kvefeinkenni er að ræða og þvo hendur reglulega.
•Láta heilbrigðisstarfsmenn vita um ferðir sínar ef einstaklingar þurfa að leita til heilbrigðiskerfisins hér á landi.
Munurinn á kórónaveirusýkingu og inflúensu
Einkenni hinnar nýju kórónaveirusýkingar geta verið svipuð inflúensu í upphafi sjúkdóms. Einkenni inflúensunnar koma oftast snögglega og lýsa sér með hita, hósta, hálssærindum, höfuðverk, vöðvaverkjum og almennri vanlíðan.
Samskiptaleiðir – mikilvæg símanúmer#samskiptaleidir-mikilvaeg-simanumer
Neyðarlínan | 112 | http://www.112.is/ |
Læknavakt | 1770 og 1700 | http://www.112.is/samstarfsadilar/laeknavaktin-1770/ |
Almannavarnir | 112 | http://www.almannavarnir.is/ |
Landspítali | 543 1000 | http://www.landspitali.is |
Embætti landlæknis/sóttvarnalæknir | 510 1900 og 510 1933 | http://www.landlaeknir.is |
Rauði krossinn vinalína fyrir sálrænan stuðning | 1717 | http://www.raudikrossinn.is |
Axel Örn Sveinbjörnsson, oddviti | 844 1112 |