Umsóknarfrestur
15. apríl 2026
15. apríl 2026
Vopnafjarðarskóli
Um er að ræða 80-100% stöður.
Í skólanum eru um 80 nemendur. Skólastarf Vopnafjarðarskóla hefur það að markmiði að hlúa að nemendum bæði námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Gildi skólans er virðing, ábyrgð og vellíðan. Skólinn er heilsueflandi grunnskóli og unnið er eftir uppeldisstefnu sem nefnist jákvæður agi. Mikil áhersla er á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti. Leitað er að kennurum sem eru reiðubúnir til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks með samstarf og samvinnu að leiðarljósi.
Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, upplýsingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitafélaga og KÍ.
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur um ofangreindar stöður er til 15. apríl og skulu umsóknir ásamt leyfisbréfi og ferilskrá berast á netfangið sigridur@vopnaskoli.is
Ráðið er í störfin frá 1. ágúst 2026.