Umsóknarfrestur
10. maí 2026
10. maí 2026
Vopnafjarðarskóli
Vopnafjarðarhreppur leitar að öflugum, metnaðarfullum og traustum einstaklingi með góða þekkingu á skólastarfi til að leiða framsækið skólastarf. Um að ræða tímabundna stöðu til eins árs, skólaárið 2026-2027 með möguleika á framlengingu.
Umsóknarfrestur er t.o.m. 10 maí nk.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í síðasta lagi 1. ágúst 2026.
Upplýsingar um Vopnafjarðarskóla má vinna á www.vopnaskoli.is.
Með umsókn skal fylgja kynningarbréf, ferilskrá, afrit af prófskirteinum og leyfisbréfi.
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfallið er 100%.
Upplýsingar veitir Íris Edda Jónsdóttir, í síma 473-1300 og í gegnum tölvupóst irisj@vfh.is.
Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið.