Vopna­fjarð­ar­hreppur auglýsir starf gjald­kera laust til umsóknar

Umsóknarfrestur

20. júlí 2026

Auglýsandi

Vopnafjarðarhreppur

Vopna­fjarð­ar­hreppur auglýsir laust til umsóknar starf á skrif­stofu sveit­ar­fé­lagsins.
Starfið felur í sér bókhalds­vinnu, útgáfu reikn­inga og önnur verk­efni tengd fjár­málum og rekstri.

Helstu verkefni og ábyrgð:#helstu-verkefni-og-abyrgd

  • Bókanir og greiðslur reikn­inga
  • Útgáfa reikn­inga og innheimta
  • Móttaka og færslur á greiðslum
  • Uppgjör og upplýs­ingar um stöðu viðskipta­reikn­inga
  • Bókun og innheimta ýmissa deilda
  • Önnur fjár­mála­tengd störf á skrif­stofu.

Hæfniskröfur starfsins: #haefniskrofur-starfsins

  • Háskóla­menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Mjög góð þekking á bókhaldi, afstemm­ingum og fjár­málum sveit­ar­fé­laga
  • Þekking og reynsla á gæða- og skjala­stjórnun, gerð verk­ferla er kostur
  • Góð tölvu­færni ásamt þekk­ingu/reynslu á notkun Sharepoint er mikilvæg
  • Þjón­ustu­lund ásamt góðri samskipta- og samvinnu­færni
  • Jákvætt viðhorf, frum­kvæði og drif­kraftur
  • Góð íslensku- og ensku­kunn­átta

Annað: #annad

  • Starfs­manni ber jafn­framt að sinna öðrum tilfallandi verk­efnum, sem fjár­mála­stjóri eða sveit­ar­stjóri kunna að fela honum og lúta að starfinu
  • Starfið getur verið unnið í 50 – 70% starfs­hlut­falli, samkvæmt nánara samkomu­lagi
  • Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026
  • Launa­kjör eru samkvæmt kjara­samn­ingum Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og viðkom­andi stétt­ar­fé­lags.

Umsókn­ar­frestur er til og með 20. júlí 2026 og skulu umsóknir sendar á netfangið skrif­stofa@vfh.is.

Öllum umsóknum skal fylgja feril­skrá ásamt kynn­ing­ar­bréfi.

Öll kyn eru hvött til þess að sækja um starfið.

 

Nánari upplýsingar veitir#nanari-upplysingar-veitir