Sumarstörf á Minja­safninu á Bust­ar­felli

Umsóknarfrestur

17. apríl 2026

Auglýsandi

Minjasafnið á Bustarfelli

Minja­safnið á Bust­ar­felli auglýsir eftir starfs­fólki fyrir sumarið 2026.

Leitað er að fólki til að vinna á safninu sem safn­vörður og á kaffi­húsinu Hjáleig­unni. Safnið er opið frá 1. júní – 31. ágúst, kl. 10:00-17:00.

Helstu störf eru að þjón­usta gesti, leið­sögn um safnið og safn­gæsla. Á kaffi­húsinu felast störfin í þjón­ustu við gesti, kaffi­gerð, bakstur og fram­reiðslu.

Leitað er að áhuga­sömu og þjón­ustu­lyndu starfs­fólki. Reynsla af þjón­ustu­störfum er kostur. Umsækj­endur þurfa að vera 18 ára eða eldri.

Skráningaverkefni#skraningaverkefni

Leitað er að metn­að­ar­fullum starfs­manni í skrán­ing­ar­verk­efni fyrir Minja­safnið á Bust­ar­felli. Starfið hentar einstak­lingi með háskóla­menntun sem nýtist í starfi eða háskóla­nema. Starfið felst í skrán­ingu safn­muna safnsins í Sarp. Starfs­tíminn er frá miðjum júní fram í miðjan ágúst 2026.

Umsóknir#umsoknir

Umsókn­ar­frestur er til 17. apríl 2026. Umsóknir verða afgreiddar jafnóðum.

Áhuga­samir geta haft samband við okkur á bust­ar­fell@simnet.is.