Athugið að umsóknarfresturinn á þessu starfi er liðinn

Sumarstörf 2021

Umsóknarfrestur

30. apríl 2021

Auglýsandi

Vopnafjarðarhreppur

Vopna­fjarð­ar­hreppur auglýsir sumarstörf 2021 laus til umsóknar.

Um er að ræða störf sem henta báðum kynjum.

Á meðal verkefna sem um ræðir eru:#a-medal-verkefna-sem-um-raedir-eru

  • Sláttur og hirðing opinna svæða
  • Umsjón með vall­ar­svæði
  • Vinna við leikj­a­nám­skeið
  • Skap­andi sumarstörf*
  • Ýmis tilfallandi störf á vegum sveit­ar­fé­lagsins

* Í sumar býðst fólki á aldr­inum 18 til 30 ára tæki­færi til að starfa við að sinna skap­andi verk­efnum og kynna þau fyrir bæjar­búum. Hugmyndir að skap­andi verk­efnum skulu fylgja starfs­um­sókn. Við val á verk­efnum er m.a. tekið tillit til raun­hæfni og frum­leika verk­efna. Hugmyndin er að þessi störf verði tengd átaks­verk­efninu „Sumarstörf náms­manna“.

Jafn­framt er auglýst eftir flokks­stjórum bæjar­vinnu og umsjón­ar­aðila vinnu­skóla sveit­ar­fé­lagsins. Störf flokks­stjóra/umsjón­ar­aðila felast m.a. í að skipu­leggja og stjórna starfi bæjar­vinnu/vinnu­skóla og fræða nemendur um rétt vinnu­brögð og verk­þætti. Leitað er eftir skipu­lögðum og úrræða­góðum einstak­lingum og æski­legt er að flokks­stjórar hafi bílpróf.

Vinnukóli 2021#vinnukoli-2021

Vinnu­skóli Vopna­fjarð­ar­hrepps verður með eftir­far­andi hætti sumarið 2021:

  • Unglingar fæddir 2007 (8. bekkur) – Vinna hefst mánu­daginn 7. júní og lýkur föstu­daginn 2. júlí. Fjöldi vinnu­stunda 4 klst. á dag.
  • Unglingar fæddir 2006 (9. bekkur) – Vinna hefst mánu­daginn 7. júní og lýkur föstu­daginn 16. júlí. Fjöldi vinnu­stunda 8 klst. á dag.
  • Unglingar fæddir 2005 (10. bekkur) – Vinna hefst mánu­daginn 7. júní og lýkur föstu­daginn 30. júlí. Fjöldi vinnu­stunda 8 klst. á dag.

Umsóknir#umsoknir

Umsóknum skal skila á skrif­stofu Vopna­fjarð­ar­hrepps eigi síðar en föstu­daginn 30. apríl nk. eða á netfangið skrif­stofa@vfh.is.

Nánari upplýsingar um störfin veita:#nanari-upplysingar-um-storfin-veita