Athugið að umsóknarfresturinn á þessu starfi er liðinn

Sumarstarf í leik­skól­anum Brekkubæ

Umsóknarfrestur

2. apríl 2024

Auglýsandi

Leikskólinn Brekkubær

Við leitum eftir hressum og jákvæðum starfs­manni til starfa á leik­skól­anum Brekkubæ í sumar.

Ráðn­ing­ar­tíminn er frá 13. maí fram til 4.júlí. Um er að ræða 100% starf.

Skil­yrði er að viðkom­andi hafi hreint saka­vottorð og sé 18 ára eða eldri.

Helstu verk­efni og ábyrgð:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barna á leik­skóla undir leið­sögn og stjórn deild­ar­stjóra
  • Tekur þátt í leik­skóla­starfi innan leik­skólans og öðrum þeim störfum sem fram fara innan skóla­dagsins.
  • Önnur verk­efni samkvæmt starfs­lýs­ingu og sem yfir­maður felur starfs­manni

Mennt­unar- og hæfnis­kröfur:

  • Reynsla af leik­skóla­starfi eða öðrum störfum með börnum æskileg.
  • Áhugi á faglegu starfi með börnum
  • Góð samstarfs- og samskipta­hæfni
  • Sjálf­stæði í vinnu­brögðum
  • Góð íslensku­kunn­átta

Launa­kjör eru samkvæmt kjara­samn­ingi Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga við Verka­lýðs­fé­lagið Afl eða KÍ ef kenn­ara­mennt­aður einstak­lingur sækir um starfið.

Fáist faglærður kennari til starfa, nýtur hann forgangs í starfið á grund­velli laga nr. 95/2019. Við hvetjum kennara til að sækja um. Leyf­is­bréf kennara fylgi umsókn.

Umsókn­ar­frestur er til og með 2. apríl 2024.

Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar #nanari-upplysingar