Umsóknarfrestur
13. júní 2025
13. júní 2025
Vopnafjarðarhreppur
Vopnafjarðarhreppur leitar nú að öflugum liðsfélaga í íþróttahús sveitarfélagsins.
Við leitum að sjálfstæðum, þjónustulunduðum einstaklingi með góða samskiptafærni.
Starfið felur í sér móttöku, þrif og almenna umhirðu hússins og búnaðar.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð og hafi náð 18 ára aldri.
Starfshlutfall er 90-100% og laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í síðasta lagi 1. september nk.
Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 13. júní 2025 og skulu umsóknir sendar á netfangið skrifstofa@vfh.is.