Rekstr­ar­aðili óskast fyrir veit­ing­a­rekstur í Kaup­vangi á Vopna­firði

Umsóknarfrestur

20. júlí 2026

Auglýsandi

Vopnafjarðarhreppur

Vopna­fjarð­ar­hreppur leitar að metn­að­ar­fullum rekstr­ar­aðila til að taka við og þróa veit­ing­a­rekstur í Kaup­vangi, einu af einkenn­is­húsum Vopna­fjarðar.

Kaup­vangur stendur í hjarta þorpsins og hefur um árabil verið mikil­vægur samkomu­staður fyrir íbúa og gesti. Á jarðhæð hússins hefur verið rekinn veit­inga­staður undan­farin ár, en áður kaffihús og fjöl­breytt menn­ing­ar­starf­semi, svo sem tónleikar, sýningar og aðrir viðburðir.

Nú leitum við að aðila sem vill byggja á þessari sögu og þróa starf­semina áfram.

Til leigu er um 102 fermetra rými á jarðhæð með veit­ingasal, eldhúsi og geymslu­rými, tveimur salernum fyrir gesti og aðgangi að starfs­manna­að­stöðu. Með húsnæðinu fylgir hluti þess búnaðar sem þarf til veit­ing­a­rekstrar.

Fram undan er aukin uppbygging starf­semi í Kaup­vangi og markmið Vopna­fjarð­ar­hrepps er að efla húsið enn frekar sem lifandi samkomu­stað fyrir íbúa og gesti. Horft er til þess að lengja opnun­ar­tíma og efla veit­inga/kaffi­hús­a­starf­semi þannig að húsið sé opið yfir stærri hluta dagsins. Einnig eru tæki­færi til að þróa þjón­ustu fyrir þá sem starfa í húsinu eða sækja það reglu­lega, meðal annars með aðgengi að kaffi og annari veit­inga­þjón­ustu samkvæmt fyrir­komu­lagi sem hentar rekstr­ar­aðila og sveit­ar­fé­laginu. Horft er til þess að efla starf­semi í Kaup­vangi á næstu árum með það að mark­miði að húsið verði enn öflugri miðpunktur mann­lífs, þjón­ustu og menn­ingar á Vopna­firði.

Við leitum að samstarfs­aðila sem sér tæki­færin í húsinu. Umsækj­endur eru hvattir til að lýsa hugmyndum sínum að starf­semi, opnun­ar­tíma og þeirri þjón­ustu sem þeir hyggjast bjóða. Leigu­kjör verða metin með hlið­sjón af umfangi rekstrar og eftir samkomu­lagi.

Húsnæðið verður laust frá 1. sept­ember 2026, en mögu­legt er að semja um aðgang frá 1. ágúst.

Veit­ing­a­rekstri í Kaup­vangi hefur jafn­framt fylgt upplýs­inga­gjöf fyrir ferða­menn og almenning, auk umhirðu sameig­in­legra rýma á jarðhæð. Um þau verk­efni og fyrir­komulag þeirra verður samið sérstak­lega við rekstr­ar­aðila.

Umsóknum skal skila til skrif­stofu Vopna­fjarð­ar­hrepps eða á netfangið skrif­stofa@vfh.is
Umsókn­ar­frestur er til og með 20. júlí 2026.

Vopna­fjarð­ar­hreppur áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum eða ganga til samn­inga við þann umsækj­anda sem best uppfyllir markmið verk­efn­isins.

Allar frekari upplýs­ingar veitir Íris Edda Jóns­dóttir, sveit­ar­stjóri á netfangið irisj@vfh.is eða í síma 690-3921.