Athugið að þessi viðburður er liðinn

Stóri plokk­dag­urinn

28. apríl 2024

Vopnafjarðarhreppur

Búðaröxl

Stóri Plokk­dag­urinn er á sunnu­daginn 28. apríl 2024!

Vopna­fjarð­ar­hreppur hvetur íbúa til að plokka rusl í sínu nærum­hverfi og taka þátt í stóra Plokk­deg­inum sem haldinn verður þann dag um allt land.

Sveit­ar­fé­lagið verður með gám fyrir utan gáma­svæðið uppi á Búðaröxl fyrir poka.

Hvað þarf ég?

  • Plast­poka
  • Snæri eða bensli til að loka plast­pok­unum svo ekkert fjúki úr þeim þegar búið er að fylla þá
  • Plokk­tangir eru ágætar, ekki nauð­syn­legar.

Hvernig erum við útbúin:

  • Klæðum okkur eftir aðstæðum. Hanskar eru ákjós­an­legir.

Frágangur á plokki:

  • Bindum vel fyrir pokana og skorðum þá þannig að ekki fjúki upp úr þeim og þeir fjúki ekki sjálfir
  • Förum með í gáminn sem verður stað­settur á Búðaröxl