Golf­klúbbur Vopna­fjarðar


Golf­klúbbur Vopna­fjarðar var stofn­aður þann 18. sept­ember 2008 og hefur starfað samfleytt síðan. Þess má geta að  stofn­aður var golf­klúbbur á Vopna­firði árið 1984 sem var allvirkur um stund en lagðist af 8 árum síðar. Menn gáfu þó drauminn aldrei upp á bátinn, menn og konur héldu áfram að arka um hlíðar golf­vall­arins ofan Skála í enda­lausri baráttu við hvítu kúluna.

Golf­völlur Vopna­fjarðar er 9 holu völlur innan þétt­býl­isins í landi Skála. Þykir völl­urinn þrátt fyrir smæð sína einkar áhuga­verður við að eiga fyrir golfarann, brautir eru stuttar en mjög krefj­andi. Mikil vinna hefur verið lögð í að endur­bæta völlinn á síðustu árum og við hann stendur nú glæsi­legur golf­skáli klúbbsins.