Hreppsráð

Fundur nr. 27

Kjörtímabilið 2022—2026

2. maí 2024

Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð

Fundur haldinn í hreppsráði Vopnafjarðarhrepps, fimmtudaginn 2. maí 2024 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl. 08:00.

1. Erindi#1-erindi

  • Heim­ild­ar­beiðni

    ​Framlengja þarf yfirdráttarheimild sveitarfélagsins hjá Landsbankanum að upphæð 50 m.kr. 

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð samþykkir að framlengja yfirdráttarheimildina. 

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Samn­ingur við Minja­safnið á Bust­ar­felli

    ​Fyrir liggur beiðni frá Minjasafninu á Bustarfelli um viðbótar fjárveitingu, eins og síðastliðin tvö ár, að upphæð 1 m.kr. Jafnframt er óskað eftir viðræðum um framtíðarskipulag á rekstri safnsins.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð samþykkir viðbótar fjárveitingu og vísar viðræðum um framtíðarskipulag reksturs til umsagnar í menningar- og atvinnumálanefnd. Hreppsráð felur einnig formanni hreppsráðs að boða safnstjóra á fund með hreppsráði. 

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Reglur um neta­veiði í sjó - drög

    ​Fyrir liggja drög að reglum um netaveiði í sjó fyrir landi Vopnafjarðarhrepps, ásamt minnisblaði frá lögfræðistofunni Magna Lögmenn. Einnig liggur fyrir hvatning frá Fiskistofu og Hafrannsóknarstofnun um tímabundið bann við netaveiðum vegna slæms ástands á bleikjustofni.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð samþykkir að málið verði unnið áfram og vísar ákvörðun til sveitarstjórnar.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Fram­kvæmdaráætlun hesta­manna­fé­lagsins Glófaxa

    ​Fyrir liggur framkvæmdaáætlun frá hestamannafélaginu Glófaxa vegna fyrri samskipta. 

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð samþykkir að vísa framkvæmdaáætlun til fjárhagsáætlunarvinnu.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða

  • Leyfi fyrir kajak ferðum á Nýpslónum

    ​Fyrir liggur beiðni frá Snætindur ehf. vegna Saga Kayak um leyfi fyrir kajak ferðum á Nýpslónum til þess að auka fjölbreytni kajak ferða sem boðið verður upp á. 

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð fagnar framtakinu og aukinni fjölbreytni í afþreyingu í Vopnafjarðarhreppi og samþykkir erindið.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Fiskbúð á Vopna­firði

    ​Fyrir liggur erindi frá Rögnvaldi Þorgrímssyni um aðstöðu og staðsetningu fyrir sjálfsafgreiðslu fiskisölu í miðbænum. 

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð vísar erindinu til umsagnar og afgreiðslu í umhverfis- og framkvæmdaráði. 

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Yfir­maður eigna­sjóðs og þjón­ustumið­stöðvar

    ​Framlengdur umsóknarfrestur um stöðu yfirmanns eignasjóðs og þjónustumiðstöðvar er liðinn og bárust fjórar umsóknir.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð samþykkir að fela verkefnastjóra úrvinnslu umsókna og leita leiðsagnar Attentus mannauður og ráðgjöf ef þörf er á og vísar ráðningu til sveitarstjórnar.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Staða fram­kvæmda

    ​Minnisblað vegna stöðu framkvæmda og fjárfestinga hjá Vopnafjarðarhreppi lagt fram til kynningar. Sara Kolodziejczyk frá Eflu kom inn á fund og fór yfir stöðu gatnagerðar.

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 09:31.