Í lok árs 2020 hlaut verkefnið „Fjölþjóðleg listahátíð barna“ menningarstyrk úr Uppbyggingarsjóði Austurlands. Umsækjandi um styrkinn var Vopnafjarðarhreppur og verkefnisstjóri er Þórhildur Sigurðardóttir.
Um verkefnið#um-verkefnid
Markmið verkefnisins er meðal annars að kynna fjölbreytileika menningar mismunandi þjóða, auka víðsýni og efla vináttu í samfélaginu með áherslu á fjölbreytt listastarf barna.
Þema verkefnisins eru þjóðfánar, vinátta og sköpun.
Í dag er vitað um 22 þjóðarbrot á Vopnafirði. Hluti verkefnisins er að fagna þjóðhátíðardögum allra þeirra þjóða með því að draga þjóðfána þeirra að húni.
Hluti af þessu verkefni er “Fjölþjóðleg listahátíð barna“ sem haldin verður í Miklagarði laugardaginn 25. september n.k.
Þar verður meðal annars á dagskránni:
- bíó fyrir krakka
- barnahorn
- úrslit í teiknisamkeppni
- leikir
Allir velkomnir!