Mikið rusl fellur til um áramót þegar tonnum af flugeldum er skotið á loft.
Nokkuð mikið er um það að tómir flugeldakassar, spýtur og prik liggi á víð og dreif um bæinn í upphafi árs og biðlum við til íbúa og fyrirtækja á svæðinu að huga að nærumhverfi sínu og taka til eftir áramótagleðina.