Umsóknarfrestur
7. júlí 2021
7. júlí 2021
Vopnafjarðahreppur
Leikskólinn Brekkubær Vopnafirði auglýsir eftir leiðbeinanda/leikskólakennara í 60% starf frá 1. september n.k.
Brekkubær er þriggja deilda leikskóli á Vopnafirði. Í leikskólanum verða 44 börn í haust.
Einkunnarorð leikskólans eru: Leikur, gleði og þekking.
Lifandi vinnustaður með skemmtilegu og hressu starfsfólki í fararbroddi.
Unnið er samkvæmt starfslýsingum Félags leikskólakennara, en starfslýsingu leikskólakennara má finna á ki.is.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.
Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.
Umsóknarfrestur er til og með 7. júlí 2021.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og nöfn meðmælanda sem hafa má samband við.
Nánari upplýsingar um starfið er hægt að nálgast hjá Söndru Konráðsdóttur leikskólastjóra í síma 473-1269 eða með því að senda fyrirspurnir á netfangið sandra@vopnafjardarhreppur.is.
Allir eru hvattir til að sækja um starfið.