Sveitarstjórn
Fundur nr. 5
Kjörtímabilið 2026—2030
16. september 2026
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00
Björn Ingimarsson ritaði fundargerð
Mætt til fundar
Fundur nr. 5 kjörtímabilið 2026-2030 haldinn í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps miðvikudaginn 16. september 2026 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00.
Þórhildur Sigurðardóttir sat fundinn undir lið a.
- Prókúra staðgengils sveitarstjóra
Fyrir liggur afgreiðsla fundar hreppsráðs Vopnafjarðarhrepps, dags. 9. september 2026, þar sem hreppsráð samþykkir að veita Birni Ingimarssyni prókúruumboð fyrir hönd Vopnafjarðarhrepps.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að veita Birni Ingimarssyni, kt. 301254-4079, prókúruumboð fyrir hönd Vopnafjarðarhrepps. Samþykkt samhljóða.
- Barnvænt sveitarfélag
Þórhildur Sigurðardóttir, starfsmaður fjölskylduráðs og umsjónarmaður um barnvænt sveitarfélag, mætti á fundinn og fór yfir verkefnið auk samstarfssamnings Vopnafjarðarhrepps við UNICEF.
Minnisblað frá Þórhildi umsjónarmanni um barnvænt sveitafélag.
Samstarfssamningur við UNICEF
Til máls tók SK.
Sveitarstjórn þakkar Þórhildi góða yfirferð og upplýsingagjöf.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að halda áfram með verkefnið Barnvænt sveitarfélag næstu þrjú ár. Samþykkt samhljóða
- Erindi frá félagi eldri borgara varðandi myndagrúsk
Fyrir liggur erindi frá stjórn eldriborgarafélagsins þar sem óskað er eftir greiðslu frá sveitarfélaginu til félagsins vegna vinnu við skönnun og sýningu mynda í Sambúð.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga varðandi verkefnið og verður það tekið til afgreiðslu er frekari upplýsingar liggja fyrir.
Til máls tók BI, SK, HKT, ÍEJ, SG, MÞR.
- Erindi frá menningar- og atvinnumálanefnd varðandi menningar- og ferðamálafulltrúa
Fyrir liggur bókun frá fundi menningar- og atvinnumálanefndar, dags. 9. september 2026, þar sem lagt er til að sveitarstjórn skoði möguleika á að ráða í stöðu menningar- og ferðamálafulltrúa.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að taka málið til skoðunar samhliða vinnu við gerð fjárhagsáætlunar auk mögulegra samstarfsverkefna, s.s. með Byggðastofnun og Austurbrú. Til máls tók EG, BI, SK, HKT, SG, ÍEJ.
Samþykkt samhljóða.
- Fundargerðir til staðfestingar
Menningar- og atvinnumálanefnd nr. 1 120826
Lagt fram til staðfestingar.
Umhverfis- og framkvæmdaráð nr. 1 120826
Lagt fram til staðfestingar.
Til máls tók EG undir lið h.
Kjörstjórn nr. 1 180826
Lagt fram til kynningar.
Kjörstjórn nr. 2 260826
Lagt fram til kynningar.
Fjölskylduráð nr. 1 010926
Lagt fram til staðfestingar.
Menningar- og atvinnumálanefnd nr. 2 090926
Lagt fram til staðfestingar.
Hreppsráð nr. 1 090926
Lagt fram til staðfestingar.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 14:55.