Sveit­ar­stjórn

Fundur nr. 2

Kjörtímabilið 2026—2030

18. júní 2026

Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð

Fundur nr. 2 kjörtímabilið 2026-2030 haldinn í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps fimmtudaginn 18. júní 2026 í félagsheimilinu Miklagarði kl 14:00.

1. Erindi#1-erindi

  • Ráðn­ing­ar­samn­ingur sveit­ar­stjóra

    Fyrir liggur ráðningasamningur sveitarstjóra dagsettur 1. júní 2026.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir fyrirliggjandi ráðningarsamning við Íris Eddu Jónsdóttur og felur oddvita að ganga frá samningi. Samningurinn verður birtur á vefsíðu sveitarfélagsins.

    Íris Edda Jónsdóttir óskar eftir að fá að víkja af fundi vegna vanhæfis.

    Borið upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
    Gulmira Kanakova situr undir þessum lið í gegnum fjarfundabúnað.
    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Tíma­bundinn ráðn­ing­ar­samn­ingur stað­gengils sveit­ar­stjóra

    ​Fyrir liggur tímabundinn ráðningasamningur staðgengils sveitarstjóra dagsettur 1. september 2026.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir fyrirliggjandi ráðningarsamning við Björn Ingimarsson og felur sveitarstjóra og oddvita að ganga til samninga.

    Til máls tóku SÞ, ÍEJ og SG.
    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Björg­un­ar­báta­sjóður

    ​Lagt var fram erindi vegna fjármögnunar fyrir nýju björgunarskipi á Vopnafirði.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn samþykkir að veita verkefninu styrk að fjárhæð 12.000.000 kr. sem framlag sveitarfélagsins til fjáröflunar vegna kaupa á nýjum björgunarbáti fyrir Vopnafjörð. Styrkurinn verður greiddur út á tveimur árum og er starfandi fjármálastjóra falið að útbúa viðauka vegna styrksins.

    Til máls tóku GH, SK, ÍEJ, SG og SÞ.

    Skúli Þórðarson leggur fram eftirfarandi breytingartillögu: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að veita verkefninu styrk að fjárhæð 15.000.000. kr. sem framlag sveitarfélagsins til fjáröflunar vegna kaupa á nýjum björgunarbáti fyrir Vopnafjörð. Styrkurinn verður greiddur út á þremur árum og starfandi fjármálastjóra falið að útbúa viðauka vegna styrksins.

    Til máls tóku SG, HKT, SG, ÍEJ, SK og ÍEJ.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Grenja­vinnsla

    ​Sveitarstjórn fór yfir stöðu grenjavinnslu innan sveitarfélagsins. Fyrir liggur að samningar vegna grenjavinnslu eru útrunnir og telur sveitarstjórn tímabært að endurskoða fyrirkomulag verkefnisins.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að endurskoða fyrirkomulag grenjavinnslu fyrir tímabilið 2027. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að óska eftir fundi með veiðimönnum við fyrsta tækifæri.

    Til máls tóku SG, GH, ÍEJ, SÞ, EG, ÍEJ, HKT, SG, SK, EG, ÍEJ, HKT, GH, ÍEJ, SÞ, SG, EG, SG, SÞ og HKT.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða. 


  • Kosning full­trúa í embætti, stjórnir, ráð og nefndir

    ​Fyrir liggja tillögur um kosningu fulltrúa í embætti, stjórnir, ráð og nefndir sveitarfélagsins.

    Með fyrirvara um staðfestingu ráðuneytis á breytingu á samþykktum um stjórn Vopnafjarðarhrepps um fækkun fulltrúa í nefndum.

    a. Hreppsráð

    Aðalfulltrúar:

    Íris Edda Jónsdóttir
    Stefán Guðnason
    Magnús Þór Róbertsson

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

    Varafulltrúar:

    Eyrún Guðbergsdóttir
    Skúli Þórðarson
    Sandra Konráðsdóttir

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

    b. Fjölskylduráð

    Aðalfulltrúar:

    Eyrún Guðbergsdóttir
    Arnar Ingólfsson
    Arney Rósa Svansdóttir
    Rögnvaldur Þorgrímsson
    Ólafur H. Dan Kjerúlf

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

    c. Umhverfis- og framkvæmdaráð
    Aðalfulltrúar:
    Ingólfur Daði Jónsson
    Oddur Pétur Guðmundsson
    Kristín Jónsdóttir
    Skúli Þórðarson
    Sara Elísabet Svansdóttir

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

    Menningar- og atvinnumálanefnd

    Aðalfulltrúar:
    Eyþór Bragi Bragason
    Hólmar Bjarki Wiium Bárðarson
    Gulmira Kanakova
    Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir
    Helga Kristín Tryggadóttir

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða. 



  • Siða­reglur kjör­inna full­trúa

    Framlagðar siðareglur kjörinna fulltrúar til staðfestingar.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir fyrirliggjandi siðareglur og verða þær aðgengilegar á vef Vopnafjarðarhrepps.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Ályktun sveit­ar­stjórnar vegna uppsagna hjá Brimi hf.

    ​Í ljósi nýlegra uppsagna 20 fastráðinna starfsmanna hjá Brimi hf. leggur sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps fram eftirfarandi ályktun:

    Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps harmar ákvörðun Brims hf. um uppsögn 20 fastráðinna starfsmanna. Um er að ræða mikið högg fyrir viðkomandi starfsfólk og samfélagið allt.

    Sveitarstjórn leggur áherslu á að eiga gott og uppbyggilegt samtal við meginatvinnuveitendur í sveitarfélaginu um ákvarðanir sem hafa víðtæk áhrif á atvinnuöryggi og framtíðarsýn sveitarfélagsins. Sveitarstjórn átti fund með fulltrúum Brims 12. júní sl. og hefur verið staðfestur staðfundur með Brim og sveitarstjórn 6. ágúst nk. Þá er stefnt á íbúaþing um atvinnumál í ágúst.

    Sveitarstjórn lýsir yfir fullum stuðningi við það starfsfólk sem nú stendur frammi fyrir atvinnumissi og mun beita sér af festu fyrir hagsmunum íbúa og atvinnulífs í sveitarfélaginu.

    Til máls tóku SK, ÍEJ, SG, EG, GH, SK, EG, SG, GH, ÍEJ, HKT, SK, SÞ og ÍEJ.

    Borið upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða. 


  • Fjár­mála­stjóri

    ​Með vísan til starfsloka núverandi fjármálastjóra liggur sú staða sveitarfélagsins laus.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hefur tekið ákvörðun að sameina stöðu fjármálastjóra og verkefnastjóra stjórnsýslu í stöðu fjármála- og skrifstofustjóra. Sveitarstjórn samþykkir að auglýsa stöðu fjármála- og skrifstofustjóra lausa til umsóknar.

    Til máls tóku SK, SG, SÞ og ÍEJ.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða. 

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 15:07