Sveit­ar­stjórn

Fundur nr. 1

Kjörtímabilið 2026—2030

3. júní 2026

Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð

Fundur nr. 1 kjörtímabilið 2026-2030 haldinn í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps miðvikudaginn 3. júní 2026 í félagsheimilinu Miklagarði kl 14:00.

1. Erindi#1-erindi

  • Sveit­ar­stjórn Vopna­fjarð­ar­hrepps, kjör­tíma­bilið 2026-2030

    ​Þar sem aðeins einn framboðslisti kom fram í sveitarstjórnarkosningum 2026 á Vopnafirði, Sterk Stoð, telst hann sjálfkjörinn. Öllum kjörnum fulltrúum hefur verið sendur tölvupóstur frá yfirkjörstjórn Vopnafjarðarhrepps um kjörið.

    Eftirtaldir aðilar taka sæti í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps kjörtímabilið 2026-2030 sem aðalmenn:

    Íris Edda Jónsdóttir
    Stefán Guðnason
    Magnús Þór Róbertsson
    Eyrún Guðbergsdóttir
    Skúli Þórðarson
    Sandra Konráðsdóttir
    Zhivko Dinev

    Varamenn sveitarstjórnar eru:

    Gauti Halldórsson
    Helga Kristín Tryggvadóttir
    Gulmira Kanakova
    Ingólfur Sveinsson
    Kristín Jónsdóttir
    Oddur Pétur Guðmundsson
    Baldur Friðriksson


  • Kosning oddvita sveit­ar­stjórnar

    ​Gengið var til kosninga um oddvita sveitarstjórnar. Íris Edda Jónsdóttir ber fram þá tillögu að Stefán Guðnason verði kosinn oddviti. Engar aðrar tillögur komu fram.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Kosning fyrsta vara­odd­vita og annars vara­odd­vita sveit­ar­stjórnar

    ​Stefán Guðnason leggur til að Magnús Þór Róbertsson verði 1. varaoddviti og Eyrún Guðbergsdóttir verði 2. varaoddviti. Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Breyting á samþykktum Vopna­fjarð­ar­hrepps, fyrri umræða
    Breyting á samþykkt um stjórn Vopnafjarðarhrepps varðandi nefndarfyrirkomulag og fjölda fulltrúa í sveitarstjórn tekin til fyrri umræðu.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að fresta erindinu til næsta fundar. Til máls tók SÞ, SG, ÍEJ, SÞ og SG.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Kosning aðal- og vara­full­trúa í kjör­stjórn (3 aðal­menn, 3 vara­menn)

    ​Lögð fram tillaga um skipun kjörstjórnar Vopnafjarðarhrepps fyrir kjörtímabilið 2026-2030.

    Aðalmenn:
    Bjarni Björnsson Júlíanna Þórbjörg Ólafsdóttir Dagný Steindórsdóttir


    Varamenn:
    Sólrún Dögg Baldursdóttir Svanborg Víglundsdóttir Einar Björn Kristbergsson

    Tillagan er borin upp til samþykktar.


  • Skipun aðal- og vara­full­trúa í stjórn SSA

    ​Samkvæmt samþykktum Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) skal sveitarstjórn skipa fulltrúa og varafulltrúa í stjórn samtakanna fyrir hönd sveitarfélagsins.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps skipar Írisi Eddu Jónsdóttur sem aðalfulltrúa í stjórn Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi fyrir hönd Vopnafjarðarhrepps og Stefán Guðnason sem varafulltrúa.

    Til máls tók ÍEJ.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Fund­ar­tími sveit­ar­stjórnar

    ​Fyrir liggur minnisblað um fundatíma sveitarstjórnar dagsett 28. maí 2026.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að fastur fundatími sveitarstjórnar verði 3. fimmtudagur í mánuði að júlí frátöldum og að fundir hefjist kl. 14:00. Fundarstaður verði í félagsheimilinu Miklagarði að jafnaði. Fundarstaður verði auglýstur fyrir hvern fund.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 14:16.