Fundur nr. 57
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð
Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir (AÓS)
OddvitiSigurður Grétar Sigurðsson (SGS)
NefndarmaðurBobana Micanovic (BM)
NefndarmaðurJenný Heiða Hallgrímsdóttir (JHH)
NefndarmaðurBjartur Aðalbjörnsson (BA)
NefndarmaðurBjörn Heiðar Sigurbjörnsson (BHS)
NefndarmaðurHafdís Bára Óskarsdóttir (HBÓ)
NefndarmaðurÍris Edda Jónsdóttir
SveitarstjóriIngimar Guðmundsson
Endurskoðandi KPMGRekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 1.510 millj. kr., samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 1.222 millj. kr.
Rekstrarniðurstaða A og B hluta var neikvæð um 64 millj. kr. rekstrarniðurstaða A hluta var neikvæð um 138 millj. kr samkvæmt rekstrarreikningi.
Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 866 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta var neikvætt um 244 millj. kr.
Loðnubrestur á árinu hafði veruleg áhrif á tekjur og útsvar sveitarfélagsins. Jafnframt leiddu afturvirkir kjarasamningar vegna grunn- og leikskólakennara til aukins kostnaðar. Af þeim sökum var gripið til 60 mkr. lántöku til að mæta óvæntum sveiflum í rekstri sveitarfélagsins.
Þrátt fyrir það er skuldastaða sveitarfélagsins góð og vel innan viðmiðunarmarka sem um það gilda.
Ársreikningurinn í heild sinni verður að öðru leyti aðgengilegur á heimasíðu Vopnafjarðarhrepps.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir framlagðan samstæðureikning Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2025 við síðari umræðu, en fyrri umræða um hann fór fram 16. apríl sl.
Til máls tók BHS og Ingimar.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Kynning á framkvæmdaleyfisumsókn mál nr. 543/2025 er lokið. Umsagnir bárust frá Slökkviliði Múlaþings, Svæðisskipulagsnefnd, Hafrannsóknastofnun, Náttúruverndarstofnun og Náttúrufræðistofnun.