Sveit­ar­stjórn

Fundur nr. 55

Kjörtímabilið 2022—2026

19. mars 2026

Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð

Mætt til fundar

  • BM(

    Bobana Micanovic (BM)

    Nefndarmaður
  • AÓS(

    Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir (AÓS)

    Oddviti
  • SGS(

    Sigurður Grétar Sigurðsson (SGS)

    Nefndarmaður
  • JHH(

    Jenný Heiða Hallgrímsdóttir (JHH)

    Nefndarmaður
  • BA(

    Bjartur Aðalbjörnsson (BA)

    Nefndarmaður
  • BHS(

    Björn Heiðar Sigurbjörnsson (BHS)

    Nefndarmaður
  • HBÓ(

    Hafdís Bára Óskarsdóttir (HBÓ)

    Nefndarmaður
  • HG

    Hreiðar Geirsson

    Nefndarmaður
  • ÍEJ

    Íris Edda Jónsdóttir

    Starfandi sveitarstjóri
Fundur nr. 55, kjörtímabilið 2022-2026, haldinn í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps 19. mars 2026 í félagsheimilinu Miklagarði kl.14:00.

1. Erindi#1-erindi

  • Niður­staða úttektar á rekstri A-hluta sveit­ar­fé­lagsins

    ​Málið er trúnaðarmál og fært í trúnaðarbækur. 

    Fyrir liggur skýrsla frá Birni Ingimarssyni, ráðgjafa um lokaniðurstöður úttektar á rekstri A-hluta sveitarfélagsins.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps vísar skýrslunni til hreppsráðs til áframhaldandi vinnu. 

    Til máls tók BA, ÍEJ og AÓS. 

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Uppsagn­ar­bréf skóla­stjóra Vopna­fjarð­ar­skóla

    Framlagt uppsagnarbréf skólastjóra Vopnafjarðarskóla.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps staðfestir móttöku bréfsins og þakkar Sigríði Elvu Konráðsdóttur, skólastjóra, kærlega fyrir hennar störf og óskar henni velfarnaðar í framtíðinni. 

    Til máls tók AÓS, BA, AÓS, SGS og BHS.
    SGS óskar eftir fundarhléi kl. 14:19.

    Borið upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

    Fundur er settur aftur kl. 14:22.
    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Erindi frá umhverfis- og fram­kvæmda­ráði: Aðal­skipulag Vopna­fjarð­ar­hrepps til 2040, til samþykktar

    ​Til máls tók AÓS. sem óskar eftir að fá að víkja af fundi vegna vanhæfis undir þessum lið. 

    Borið upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

    Hreiðar kemur inn á fundinn í stað Aðalbjargar. 

    Lögð fram tillaga að aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2026-2040 til samþykktar. 

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir tillögu að nýju aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps til 2040 með viðbættum þegar samþykktum skógræktarsvæðum á Torfastöðum og Vakurstöðum. Skipulagsfulltrúa er falið að leita heimildar hjá Skipulagsstofnun til að auglýsa tillöguna.

    Til máls tók BA, ÍEJ og SGS. SGS óskar eftir fundarhléi kl. 14:32.
    Samþykkt samhljóða. Fundur hefst aftur 14:43. 

    Til máls tók SGS og HBÓ.
    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Erindi frá umhverfis- og fram­kvæmda­ráði: Beiðni um stofnun lóðar fyrir Einars­staði 2

    ​Fyrir liggur beiðni um stofnun lóðarinnar Einarsstaðir 2 í Hofsárdal sem umhverfis- og framkvæmdaráð tók fyrir á fundi nr. 36, 11. mars sl. 

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að stofna lóðina að Einarsstöðum 2 og felur skipulags- og byggingarfulltrúa afgreiðslu málsins. 

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Erindi frá umhverfis- og fram­kvæmda­ráði: Beiðni um umsögn vegna Tungu­ár­virkj­unar nr. 130/2025

    ​Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps gerir ekki athugasemd við tillögu að skipulagsáætlun vegna Tunguárvirkjunar.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Erindi frá umhverfis- og fram­kvæmda­ráði: Umsagn­ar­beiðni vegna máls nr. 0093/2026 vind­túr­bínur á Sauðanes­hálsi

    ​Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs nr. 35, 11. febrúar sl. var umsagnarbeiðni vegna máls nr. 0093/2026 vindtúrbínur á Sauðaneshálsi tekin fyrir.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps telur ekki ástæðu til að veita umsögn að svo stöddu.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Erindi frá fjöl­skyldu­ráði: Mennta­stefna Vopna­fjarðar

    ​Menntastefna Vopnafjarðar lögð fram til samþykktar.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir Menntastefnu Vopnafjarðar og felur starfandi sveitarstjóra að birta hana á vef sveitarfélagsins.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Erindi frá fjöl­skyldu­ráði: Grein­ar­gerð eftir úttekt UNICEF vegna viður­kenn­ingar á Barn­vænu sveit­ar­fé­lagi, til kynn­ingar

    ​Lagt fram til kynningar. 

  • Breyting á kjör­stjórn Vopna­fjarð­ar­hrepps

    ​Fyrir liggur úrsögn Stefáns Guðnasonar úr kjörstjórn Vopnafjarðarhrepps.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhepps staðfestir móttöku á úrsagnarbréfi dagsettu 09. mars 2026 og þakkar Stefáni Guðnasyni fyrir sín störf. Samþykkt er að skipa Bjarna Björnsson sem aðalmann í kjörstjórn og Svanborgu Víglundsdóttur sem varamann.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Lántaka sveit­ar­fé­lagsins

    ​Fyrir liggur breyting á undirritunarheimild vegna lántöku sveitarfélagsins.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð kr. 200.000.000 með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggur fyrir á fundinum.

    Sveitarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

    Er lánið tekið til þess að halda áfram með viðamiklar framkvæmdir við Vopnafjarðarhöfn, og aðrar framkvæmdir, sem fela í sér að vera verkefni sem hafa almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

    Jafnframt er Írisi Eddu Jónsdóttur kt. 170791-2159, starfandi sveitarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð f.h. Vopnafjarðarhrepps til þess að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

    Til máls tók BHS og ÍEJ. Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt með fjórum atkvæðum. BHS, BA og HBÓ sitja hjá.


  • Aðal­maður og vara­maður í SSA

    ​Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir verði aðalmaður í Sambandi sveitarfélaga á austurlandi f.h. Vopnafjarðarhrepps og Sigurður Grétar Sigurðsson verði varamaður.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Innsent bréf frá ungmenna­ráði Vopna­fjarð­ar­hrepps

    ​Lagt fram bréf frá ungmennaráði þar sem óskað er eftir áheyrnarfulltrúa á fundum sveitarstjórnar og að fundartími sveitarstjórnar verði endurskoðaður með það að markmiði að auðvelda þátttöku fulltrúa ráðsins.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn þakkar ungmennaráði fyrir erindið og fagnar áhuga þess á að taka virkan þátt í störfum sveitarstjórnar. Sveitarstjórn felur starfandi sveitarstjóra að vinna málið áfram í samráði við starfsmann ungmennaráðs.

    Til máls tók ÍEJ, BA, AÓS og BA. 

    Bjartur Aðalbjörnsson leggur fram eftirfarandi tillögu: Til að koma til móts við beiðni Ungmennaráðs samþykkir sveitarstjórn að sveitarstjóra sé falið að vinna að því að sveitarstjórnarfundum verði streymt á netinu eins fljótt og auðið er og greini hreppsráði frá undirbúningi þessara breytinga á næsta fundi hreppsráðs.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


2. Fundargerðir til staðfestingar#2-fundargerdir-til-stadfestingar

  • Hreppsráð nr. 50 050326

    ​Lagt fram til staðfestingar.
    BHS og ÍEJ tóku til máls undir lið b. og f. BA tekur til máls undir lið f.
    SGS, ÍEJ og AÓS tóku til máls undir lið a.

  • Umhverfis- og fram­kvæmdaráð nr. 36 110326

    ​Lagt fram til staðfestingar.

  • Menn­ingar- og atvinnu­mála­nefnd nr. 36 110326

    ​Lagt fram til staðfestingar.

  • Fjöl­skylduráð nr. 41 040326

    ​Lagt fram til staðfestingar.

    Til máls tóku SGS, AÓS og BHS undir lið c.

  • Stjórn SSA nr. 20 200226

    ​Lagt fram til kynningar.

  • Stjórn Aust­ur­brúar nr. 169 200226

    ​Lagt fram til kynningar.

  • HAUST nr. 189

    ​Lagt fram til kynningar.

  • Stjórn Hafn­ar­sam­bands Íslands nr. 480

    ​Lagt fram til kynningar.

  • Stjórn Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga nr. 993

    ​Lagt fram til kynningar.

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 15:30.