Sveitarstjórn
Fundur nr. 53
Kjörtímabilið 2022—2026
12. febrúar 2026
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 13:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð
Mætt til fundar
Aukafundur haldinn í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps, kjörtímabilið 2022-2026, miðvikudaginn 11. febrúar 2026 í félagsheimilinu Miklagarði kl.16:00.
- Breyting á fundardagskrá sveitarstjórnar
Óskað er eftir því að færa fund sveitarstjórnar sem er á dagskrá fimmtudaginn 19. febrúar nk. til miðvikudags 18. febrúar nk.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að næsta fundi sveitarstjórnar verði flýtt til 18. febrúar 2026.
Til máls tók AÓS.
Borið upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
- Ósk oddvita Vopnafjarðarhrepps um lausn frá störfum
Beiðni um lausn frá störfum í sveitarstjórn, nefndum og stjórnum, lögð fram frá Axel Erni Sveinbjörnssyni, oddvita Vopnafjarðarhrepps.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir beiðni Axels Arnar Sveinbjörnssonar um lausn frá störfum í sveitarstjórn, nefndum og stjórnum frá og með þessari afgreiðslu og út kjörtímabilið.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
- Kjör oddvita Vopnafjarðarhrepps
Í framhaldi lausnar oddvita Vopnafjarðarhrepps liggur fyrir kjör nýs oddvita. Lagt er til að nýr oddviti Vopnafjarðarhrepps verði Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir verði kjörin oddviti Vopnafjarðarhrepps út kjörtímabilið.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt með fjórum atkvæðum. BA, BHS og KÓP sitja hjá.
- Kjör varaoddvita Vopnafjarðarhrepps
Lagt er til að nýr varaoddviti Vopnafjarðarhrepps verði Sigurður Grétar Sigurðsson.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að Sigurður Grétar Sigurðsson verði kjörinn varaoddviti Vopnafjarðarhrepps út kjörtímabilið.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt með fjórum atkvæðum. BA, BHS, KÓP sitja hjá.
- Erindi frá umhverfis- og framkvæmdaráði: Veiðihús í landi Einarsstaða, aðalskipulagsbreyting
Fyrir liggur tillaga frá umhverfis- og framkvæmdaráði vegna aðalskipulagsbreytingu veiðihúss í landi Einarsstaða, sem ráðið samþykkti samhljóða á fundi nr. 33, 10. febrúar sl. og vísaði til sveitarstjórnar til afgreiðslu.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir fyrirliggjandi breytingu á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps þar sem gert er ráð fyrir nýju veiðihúsi við Hofsá í landi Einarsstaða.
Til máls tók AÓS.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt með sex atkvæðum. BA situr hjá.
- Erindi frá umhverfis- og framkvæmdaráði: Nýtt deiliskipulag í landi Einarsstaða
Auglýsing tillögunnar er lokið. Umsagnir bárust frá Fiskistofu, Slökkviliði Múlaþings, Náttúrufræðistofnun, Vegagerðinni og Minjastofnun Íslands. Umhverfis- og framkvæmdaráð fór yfir umsagnir og samþykkir að gera viðeigandi lagfæringar á tillögunni og vísar henni til sveitarstjórnar til afgreiðslu.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir nýtt deiliskipulag fyrir veiðihús við Hofsá í landi Einarsstaða.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt með sex atkvæðum. BA situr hjá.
- Staðgengill sveitarstjóra og prókúra
Íris Edda víkur af fundi undir þessum lið.
Lögð fram drög um viðauka við ráðningarsamning verkefnastjóra, þar sem kveðið er á um að hann gegni starfi staðgengils sveitarstjóra tímabundið og breytingu á launakjörum í því sambandi.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir fyrirliggjandi drög um viðauka og að Íris Edda Jónsdóttir verði staðgengill sveitarstjóra og prókúruhafi Vopnafjarðarhrepps út kjörtímabilið. Oddvita Vopnafjarðarhrepps er falið að ganga frá samningi og undirrita.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 16:11.