Sveit­ar­stjórn

Fundur nr. 52

Kjörtímabilið 2022—2026

4. febrúar 2026

Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 16:00
Axel Örn Sveinbjörnsson ritaði fundargerð

Fundur haldinn í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps 4. febrúar 2026 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl 16:00.
  • Starfs­loka­samn­ingur við sveit­ar­stjóra

    ​Fyrir liggur starfslokasamningur við sveitarstjóra Vopnafjarðarhrepps.

    Samkomulag hefur náðst um starfslok sveitarstjóra, Valdimar O. Hermannsson, hjá sveitarfélaginu og mun hann ljúka störfum 4. febrúar 2026. Valdimar gegndi embætti sveitarstjóra frá 1. júní 2024. Sveitarstjórn þakkar fyrir samstarfið og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir fyrir liggjandi starfslokasamning við sveitarstjóra og felur oddvita að ganga frá samningnum.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 16:23.