Sveit­ar­stjórn

Fundur nr. 51

Kjörtímabilið 2022—2026

15. janúar 2026

Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00
Valdimar O. Hermannsson ritaði fundargerð

Fundur haldinn í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps, kjörtímabilið 2022-2026, fimmtudaginn 15. janúar 2026 í félagsheimilinu Miklagarði kl 14:00. 

1. Erindi#1-erindi

  • Aðal­skipulag Vopna­fjarð­ar­hrepps til 2040

    ​Aðalskipulag Vopnafjarðarhrepps til 2040 var sent sveitarstjórn til yfirferðar í upphafi ársins ásamt því að vera kynnt fyrir Umhverfis- og framkvæmdaráði á 34. fundi þann 14. janúar 2026, þar sem farið var yfir vinnsluferlið af GÁ - skipulagsfræðingi frá Yrki og SJ - skipulags- og byggingafulltrúa Vfh., ásamt því að svara spurningum ráðsins.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að óska eftir heimild Skipulagsstofnunar til þess að auglýsa tillöguna.  
     
    Til máls tóku: AÖS, BA, BHS, SGS, AÓS og sveitarstjóri

    Björn Heiðar leggur fram tillögu um að fresta afgreiðslu málsins til næsta fundar, og sveitarsjóra falið að kalla eftir skýringum miðað við umræður á fundinum.

    Oddviti bar upp tillögu um fundarhlé í 5 mínútur – Samþykkt samhljóða.

    Tillaga BHS borin upp til samþykktar: Samþykkt samhljóða.


  • Erindi frá umhverfis- og fram­kvæmda­ráði: - Veiðihús í landi Einars­staða – aðal­skipu­lags­breyting

    ​Fyrir liggur tillaga frá Umhverfis- og framkvæmdaráði – Veiðihús í landi Einarsstaða -aðalskipulagsbreytingu, sem ráðið samþykkti samhljóða á fundi sínum nr 33  101225 og vísaði til sveitarstjórnar til afgreiðslu.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:  Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að óska eftir heimild Skipulagsstofnunar til þess að auglýsa tillöguna.
     
    Til máls tóku: BHS og sveitarstjóri

    Tillagan borin upp til samþykktar.  Samþykkt með 6 atkvæðum, BA situr hjá.   


  • Erindi frá umhverfis- og fram­kvæmda­ráði: Nýtt deili­skipulag í landi Einar­staða

    ​Auglýsing tillögunnar er lokið. Umsagnir bárust frá Fiskistofu, Slökkviliði Múlaþings, Náttúrufræðistofnun, Vegagerðinni og Minjastofnun Íslands. Umhverfis- og framkvæmdaráð fór yfir umsagnir og samþykkir að gera viðeigandi lagfæringar á tillögunni, og samþykkir samhljóða að vísa henni til sveitarstjórnar til afgreiðslu.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að auglýsa nýtt deiliskipulag í landi Einarsstaða samhliða auglýsingu um aðalskipulag.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt með 6 atkvæðum, BA situr hjá. 


  • Sérreglur um byggða­kvóta - drög

    ​Á 48. fundi hreppsráðs Vopnafjarðarhrepps, var kynnt úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025-2026, þar sem Vopnafjarðarhreppi var ráðstafað 108 tonn til úthlutunnar. Á fundinum var sveitarstjóra falið að vinna drög að sérreglum og leggja fyrir sveitarstjórn.

    Til máls tók: sveitarstjóri

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhjóða.


  • Skýrsla sveit­ar­sjóra

    ​Sveitarstjóri fór yfir helstu mál á vettvangi sveitarfélagsins og svaraði spurningum.

    Til máls tóku: BHS, AÖS og sveitarstjóri.


2. Fundargerðir til staðfestingar#2-fundargerdir-til-stadfestingar

  • Hreppsráð nr. 48

    ​Fundargerð lögð fram til staðfestingar.

  • Menn­ingar- og atvinnu­mála­nefnd Nr. 35

    ​​Fundargerð lögð fram til staðfestingar.

    Til máls  tók: BHS og sveitarstjóri.

  • Umhverfis- og fram­kvæmdaráð nr. 34

    ​Fundargerð lögð fram til staðfestingar.

    Til máls tók: sveitarstjóri


  • Stjórn Samtaka sjáv­ar­út­vegs­sveit­ar­fé­laga nr. 93.

    ​Lagt fram til kynningar.

  • Stjórn Samtaka sveit­ar­fé­laga á köldum svæðum nr. 87

    ​Lagt fram til kynningar.

  • Stjórn Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga nr. 991

    ​Lagt fram til kynningar.

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 15:34.