Sveit­ar­stjórn

Fundur nr. 50

Kjörtímabilið 2022—2026

11. desember 2025

Félagsheimilinu Miklagarði kl. 09:00

Mætt til fundar

  • AÖS(

    Axel Örn Sveinbjörnsson (AÖS)

    Oddviti
  • AÓS(

    Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir (AÓS)

    Nefndarmaður
  • SGS(

    Sigurður Grétar Sigurðsson (SGS)

    Nefndarmaður
  • JHH(

    Jenný Heiða Hallgrímsdóttir (JHH)

    Nefndarmaður
  • BHS(

    Björn Heiðar Sigurbjörnsson (BHS)

    Nefndarmaður
  • KÓP(

    Kristrún Ósk Pálsdóttir (KÓP)

    Nefndarmaður
  • AKÁ(

    Agnar Karl Árnason (AKÁ)

    Nefndarmaður
  • VOH

    Valdimar O. Hermannsson

    Sveitarstjóri
  • ÍEJ

    Íris Edda Jónsdóttir

    Verkefnastjóri stjórnsýslu
Fundur haldinn í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps, kjörtímabilið 2022-2026, fimmtudaginn 11. desember 2025 í félagsheimilinu Miklagarði kl 14:00.

1. Erindi#1-erindi

  • Síðari umræða um fjár­hags­áætlun 2026-2029

    ​Sveitarstjóri lagði fram áætlunina til síðari umræðu í sveitarstjórn. Til máls tóku AÖS, AÓS, BHS, sveitarstjóri og AÖS.

    Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2026 í milljónum kr.

    Rekstrarniðurstaða
    Samstæða A hluta neikvæð um 10 m.kr.
    Samstæða A og B hluta jákvæð um 73 m.kr.

    Fjárfestingar
    Samstæða A hluta: 72,5 m.kr.
    Samstæða A og B hluta: 223,5 m.kr.

    Afborganir langtímalána
    Samstæða A hluta: 43 m.kr.
    Samstæða A og B hluta: 78,5 m.kr.

    Í fjárhagsáætlun 2026 eru áætlaðar heildartekjur 1.612 m.kr. Veltufé frá rekstri er áætlað 199 m.kr. Handbært fé í árslok 2026 er 115 m.kr.

    Eigið fé er áætlað neikvætt um 250 m.kr. í A hluta en jákvætt um 950 m.kr. samstæðu í árslok 2026. Almennt hækka gjaldskrár 3,5%.

    Fjárfestingar ársins 2026 eru áætlaðar 223,5 millj.kr.

    Skuldahlutfall samstæðu A og B er 88% í árslok 2026.

    Fjárhagsáætlun 2026-2029 í heild sinni verður að öðru leyti aðgengileg á heimasíðu Vopnafjarðarhrepps.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir framlagða fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2026 við seinni umræðu, ásamt þriggja ára áætlun 2026 - 2029 og framangreindum álagningarhlutföllum og viðmiðunartölum. Fyrri umræða um fjárhagsáætlunina fór fram 20. nóvember sl.

    Til máls tóku BHS, sveitarstjóri, KÓP og sveitarstjóri.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt með 4 atkvæðum. BHS, AKÁ og KÓP sitja hjá.


  • Gjald­skrár 2026

    ​Til máls tók AÖS, sveitarstjóri, AÓS.

    Oddviti leggur til að allar gjaldskrár verði bornar upp til samþykktar hver fyrir sig.
    Borið er upp að gjaldskrár verði teknar til umræðu allar saman. Samþykkt samhljóða. 

    Tímabundið álag sem sett var á 2022 helst áfram óbreytt á fasteignaskatt á íbúðarhúsnæði og bújarðir árið 2026 og verður það 0,625% af heildarfasteignamati.

    • Fasteignaskattur A á íbúðarhúsnæði og bújarðir verður 0,625% af heildarfasteignamati.
    • Fasteignaskattur B á sjúkrastofnanir, skóla, heimavistir, leikskóla, íþróttahús og bókasöfn verður 1,32% af heildarfasteignamati.
    • Fasteignaskattur C á atvinnuhúsnæði og annað húsnæði er 1,65% af heildarfasteignamati. Lóðaleiga er 2% af lóðarhlutamati.
    • Fráveitugjald 0,32% af heildarfasteignamati.
    • Vatnsgjald er 0,3% af fasteignamati húss. Sorphirðugjald er innheimt skv. lögum nr. 81/1988.

    Á árinu 2026 verður gjaldið 51.339 kr. sem skiptist í sorphirðugjald 27.550 kr. og sorpeyðingargjald 23.789 kr.

    Afsláttur til örorku- og ellilífeyrisþega er framreiknaður frá fyrra ári m.v. verðlagsbreytingar.

    Gerð er undantekning með gjaldskrá leikskólans sem breytist ekki milli ára, samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar.

    Hádegisverður í Sundabúð hækkar úr 1.425 kr. í 1.550 kr.

    Verð á staka sundferð í Selárlaug verður áfram 1.100 kr. Frítt verður fyrir börn að 16 ára aldri og elli- og örorkulífeyrisþega innan sveitarfélagsins.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrár með áherslubreytingum á hafnargjaldskrá.

    Til máls tóku: KÓP, AÓS, AÖS, sveitarstjóri, BHS, sveitarstjóri, AÖS og AÓS.

    BHS óskar eftir 5 mínútna fundahléi kl. 14:51. Borið upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

    Fundur hefst að nýju kl. 15:03.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Útsvar 2026

    ​Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars árið 2025 verði 14,97% af útsvarsstofni í Vopnafjarðarhreppi. Tillaga þessi er í samræmi við 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn samþykkir að álagningarhlutfall útsvars árið 2026 verði 14,97% af útsvarsstofni í Vopnafjarðarhreppi. 

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Viðauki 2

    ​Framlagður viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2025. Viðauki 2 kemur til vegna styrks til uppbyggingar leiguíbúða aldraðra og aukinnar aðkeyptrar þjónustu.

    • Styrkur í uppbyggingu leiguíbúða aldraðra hefur þau áhrif að sjóðsteymisáætlun hækkar að fjárhæð 20 millj. kr. en engin rekstraráhrif.
    • Aðkeypt þjónusta að fjárhæð 15 millj. kr. kemur til vegna lengra tímatímabils við aðstoð í fjármálum en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir. Áhrif á rekstur er að afkoma lækkar um 15 millj. kr. og sjóðstreymi sömuleiðis.

    Heildaráhrif viðaukans eru afkoma lækkar um 15 millj. kr. og verður 11,3 millj. kr. og sjóðstreymi hækkar nettó um 5 millj. kr. og verður 29,2 millj. kr.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir fyrirliggjandi viðauka við fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps 2025.

    Til máls tók sveitarstjóri.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Lántaka sveit­ar­fé­lagsins

    ​Sveitarstjóri gerir grein fyrir forsendum á fyrirhugaðri lántöku.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 200.000.000,-, með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggur fyrir á fundinum og sem sveitarstjórn hefur kynnt sér.

    Sveitarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

    Er lánið tekið til þess að halda áfram með viðamiklar framkvæmdir við Vopnafjarðarhöfn, og aðrar framkvæmdir, sem fela í sér að vera verkefni sem hafa almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

    Jafnframt er Valdimari O. Hermannssyni, kt: 110660-3599, sveitarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Vopnafjarðarhrepps að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

    Til máls tók sveitarstjóri.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt með 4 atkvæðum. BHS, KÓP og AKÁ sitja hjá.


  • Hafn­ar­fram­kvæmdir: kostn­að­ar­greining, til kynn­ingar

    Hafnarframkvæmdir: kostnaðargreining, til kynningar Fyrir liggur sérfræðiálit Ólafs Sveinssonar vegna fyrirhugaðrar fjárfestinga í hafnarsjóð. Álitið er tekið saman í samræmi við ákvæði 66. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 með síðari breytingum, um miklar fjárfestingar og skuldbindingar. Lagt fram til kynningar.

    Til máls tók sveitarstjóri, KÓP, sveitarstjóri, BHS, sveitarstjóri, BHS, sveitarstjóri, BHS og sveitarstjóri.


  • Vaxtaplan Norð­aust­ur­hornsins

    ​Fyrir liggja tillögur starfshóps Forsætisráðuneytisins um skýrslu Atvinnumál á Húsavík og nágrenni en þar fjallar um raforkukerfið á norðurlandi eystra.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps fagnar þeim áfanga sem kynntur var af Umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra á fundi á Þórshöfn 6. nóvember sl. um uppbyggingu raforku innviða.

    Til máls tók sveitarstjóri. 

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Funda­dag­skrá sveit­ar­stjórnar 2026

    ​Fyrir liggur fundadagskrá sveitarstjórnar 2026. 

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir fyrirliggjandi fundadagskrá út kjörtímabilið 2026. 

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Funda­dag­skrá fagráða 2026

    ​Fyrir liggur fundadagskrá nefnda og ráða fyrir 2026. 

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir fyrirliggjandi fundadagskrá út kjörtímabilið 2026. Til máls tók BHS og sveitarstjóri.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Samn­ingur við rekstr­ar­aðila í Kaup­vangi

    ​Fyrir liggja drög að samningi við Spicehaus ehf. til samþykktar.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir fyrirliggjandi drög og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn.

    Til máls tók sveitarstjóri, AÓS, SGS og AÓS. 

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhjóða.


  • Umsögn vegna umsóknar um veit­inga­leyfi – Spicehaus ehf.

    ​Fyrir liggur beiðni frá HAUST um umsögn um veitingaleyfi að Hafnarbyggð 4a. 

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps veitir jákvæða umsögn vegna umsóknar um veitingaleyfi að Hafnarbyggð 4a.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Erindi frá fjöl­skyldu­ráði: Fyrir­komulag leigu­íbúða á félags­legum forsendum í sveit­ar­fé­laginu

    ​Lagt fram til kynningar.

    Til máls tók AÖS, KÓP, AÓS, BHS, AÓS, BHS og AÓS.

    Til máls tók sveitarstjóri.


2. Fundargerðir til staðfestingar#2-fundargerdir-til-stadfestingar

  • Hreppsráð nr. 47

    ​Lagt fram til staðfestingar.

  • Umhverfis- og fram­kvæmdaráð nr. 33

    ​Til máls tóku SGS, AÖS og BHS.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps vísar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs til næsta fundar sveitarstjórnar.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Fjöl­skylduráð nr. 39

    ​Lagt fram til staðfestingar.

  • Stjórn Samtaka sveit­ar­fé­laga á köldum svæðum nr. 85

    ​Lagt fram til staðfestingar.

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 16:07.