Fyrir liggur bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, þar sem kallað er eftir útgönguspá fyrir árið 2025 og upplýsingum um hvaða aðgerða sveitarstjórn ætlar að taka til að stemma stigum við þann viðvarandi halla á rekstri A-hluta hjá sveitarfélaginu.
Ingimar Guðmundsson mætir á fund í gegnum fjarfundarbúnað.
Til máls tók sveitarstjóri.
Ingimar fer yfir bréf Eftilitsnefndar og ársreikning Vopnafjarðarhrepps 2024.
Til máls tók sveitarstjóri, BA, sveitarstjóri, AÖS, BA.
Í ljósi núverandi fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og tilmæla eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga leggur Vopnafjarðarlistinn fram eftirfarandi tillögu: Sveitarstjóra, í samráði við hreppsráð, er falið að finna óháðan aðila til að taka út rekstur sveitarfélagsins og veita hreppsnefnd ráðgjöf við fjárhagslega endurskipulagningu, aðhald í rekstri og forgangsröðun fjármuna.
Til máls tóku AÖS, KÓP, BHS, sveitarstjóri, BA, AÖS, BA.
Framsókn og óháðir leggja fram eftirfarandi tillögu:
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps felur sveitarstjóra og starfandi fjármálastjóra að vinna drög að svari við bréfi Eftirlitsnefndar og leggja fyrir sveitarstjórn í desember nk. Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps vill benda á að þetta er lögbundið hlutverk Eftirlitsnefndar og allar ábendingar eru teknar til greina. Ef horft er á samstæðu A og B hluta er reksturinn krefjandi, en innan allra viðmiðunarmarka.
Samþykkt með fjórum atkvæðum. BA, BHS, KÓP greiða atkvæði á móti.
Til máls tók BA. Axel Örn Sveinbjörnsson leggur fram eftirfarandi viðaukatillögu:
Sveitarstjóra, í samráði við hreppsráð, er falið að finna óháðan aðila til að taka út rekstur sveitarfélagsins og veita hreppsnefnd ráðgjöf við fjárhagslega endurskipulagningu, aðhald í rekstri og forgangsröðun fjármuna. Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps felur sveitarstjóra og starfandi fjármálastjóra að vinna drög að svari við bréfi Eftirlitsnefndar og leggja fyrir sveitarstjórn í desember nk. Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps vill benda á að þetta er lögbundið hlutverk Eftirlitsnefndar og allar ábendingar eru teknar til greina. Ef horft er á samstæðu A og B hluta er reksturinn krefjandi, en innan allra viðmiðunarmarka.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Til máls tók: BA.