Sveit­ar­stjórn

Fundur nr. 46

Kjörtímabilið 2022—2026

25. september 2025

Félagsheimilinu Miklagarði kl. 12:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð

Mætt til fundar

  • AÖS(

    Axel Örn Sveinbjörnsson (AÖS)

    Oddviti
  • BHS(

    Björn Heiðar Sigurbjörnsson (BHS)

    Nefndarmaður
  • HBÓ(

    Hafdís Bára Óskarsdóttir (HBÓ)

    Nefndarmaður
  • SGS(

    Sigurður Grétar Sigurðsson (SGS)

    Nefndarmaður
  • BS(

    Berglind Steindórsdóttir (BS)

    Nefndarmaður
  • BM(

    Bobana Micanovic (BM)

    Nefndarmaður
  • JHH(

    Jenný Heiða Hallgrímsdóttir (JHH)

    Nefndarmaður
  • VOH

    Valdimar O. Hermannsson

    Sveitarstjóri
  • ÍEJ

    Íris Edda Jónsdóttir

    Verkefnastjóri stjórnsýslu, ritari
Fundur nr. 46 kjörtímabilið 2022-2026 haldinn í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps, kjörtímabilið 2022-2026, fimmtudaginn 25. ágúst 2025 í félagsheimilinu Miklagarði kl 12:00.

1. Erindi#1-erindi

  • Beiðni um umsögn vegna kaupa Brims hf. á Krossavík 1, Vopna­firði

    Atvinnuvegaráðuneytið hefur óskað eftir umsögn frá sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps vegna kaupa Brims hf. á Krossavík 1 skv. 10. gr. a) jarðalaga nr. 81/2004.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps felur sveitarstjóra ásamt skipulags- og byggingafulltrúa að senda inn umsögn vegna kaupa Brims hf. á jörðinni Krossavík 1, Vopnafirði.

    Til máls tók sveitarstjóri og AÖS.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Tilnefning í Úrgangsráð Aust­ur­lands

    ​Samkvæmt Svæðisáætlun um úrgangsmál á Austurlandi stendur til að stofna Úrgangsráð Austurlands.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps skipar forstöðumann þjónustumiðstöðvar í Úrgangsráð Austurlands fyrir hönd Vopnafjarðarhrepps.

    Til máls tók AÖS.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Innsent bréf frá Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingu Íslands

    Fyrir liggur bréf NTÍ þar sem vakin er athygli á byggingum á mögulegum hættusvæðum. Lagt fram til kynningar.

    Til máls tók sveitarstjóri.


  • Aðgerðaráætlun Barn­væns sveit­ar­fé­lags, til samþykktar

    ​Fyrir liggur aðgerðaráætlun Barnvæns sveitarfélags sem unnin er í samræmi við leiðbeiningar og markmið UNICEF um barnvæn sveitarfélög. Aðgerðaráætlunin miðar að því að tryggja að réttindi og hagsmunir barna verði ávallt höfð að leiðarljósi í allri stefnumótun, ákvarðanatöku og daglegri starfsemi sveitarfélagsins.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir fyrirliggjandi aðgerðaráætlun.

    Til máls tók AÖS.

    Þórhildur Sigurðardóttir (ÞS), verkefnastjóri frístunda- og æskulýðsmála mætir á fund og heldur kynningu á áætluninni og svaraði spurningum.

    Til máls tók BHS, ÞS, sveitarstjóri, HBÓ, ÞS og AÖS.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • SSNE/SSA: Innvið­a­upp­bygging norð­aust­urs­hornsins

    ​Fyrir fundinum liggur kynning á innviðaverkefni sem Langanesbyggð hefur unnið að undanfarin ár. Verkefnið heyrir undir SSNE og eru hugmyndir um að stækka verkefnið þannig að það nái frá Öxarfirði til Vopnafjarðar.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að vera tengiliður við verkefnið.

    Til máls tók sveitarstjóri, AÖS, BHS og sveitarstjóri.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt með sex atkvæðum. BHS situr hjá.

  • Fram­kvæmdir á húsnæði við Selár­laug

    ​Sveitarstjóri kynnti stöðu á fyrirhugaðum endurbótum á aðstöðuhúsi við Selárlaug.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að loka Selárlaug 1. nóvember 2025 og er áætlað að framkvæmdir standi yfir í 6 mánuði.

    Til máls tók sveitarstjóri, BHS og sveitarstjóri.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Erindi frá umhverfis- og fram­kvæmda­ráði: Merkjalýsing Krossavík 3

    Fyrir liggur erindi frá fundi umhverfis- og framkæmdaráðs nr. 30, 10. september sl. um merkjalýsingu Krossvík 3.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir erindið.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Erindi frá umhverfis- og fram­kvæmda­ráði: Deili­skipulag við Sundabúð

    ​Fyrir liggur erindi frá fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs nr. 30, haldinn 10. september sl. um deiliskipulag sem er til komið vegna mögulegrar uppbyggingar á 3-4 íbúðum fyrir aldraða austan við hjúkrunarheimilið Sundabúð.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að lýsingin verði auglýst og kynnt og hafinn verði undirbúningur að gerð fornleifaskráningar fyrir svæðið.

    Til máls tók BS, sveitarstjóri, HBÓ, sveitarstjóri, BS, BHS og sveitarstjóri.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Skýrsla sveit­ar­stjóra

    ​Sveitarstjóri fór yfir helstu mál í sveitarfélaginu og svaraði spurningum.

    Til máls tók BM, sveitarstjóri, SGS, sveitarstjóri, BHS, sveitarstjóri, HBÓ og BM.


2. Fundargerðir til staðfestingar#2-fundargerdir-til-stadfestingar

  • Hreppsráð nr. 44 080925

    ​Lagt fram til staðfestingar.

  • Fjöl­skylduráð nr. 36 090925

    ​​Lagt fram til staðfestingar.

  • Umhverfis- og fram­kvæmdaráð nr. 30 100925

    ​​Lagt fram til staðfestingar.

  • Stjórn Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga nr. 983

    ​​Lagt fram til staðfestingar.

  • Stjórn Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga nr. 984

    ​​Lagt fram til staðfestingar.

  • Stjórn Samtaka sveit­ar­fé­laga á köldum svæðum nr. 83

    ​​Lagt fram til staðfestingar.

  • Stjórn Hafn­ar­sam­bands Íslands – Nr. 474

    ​​Lagt fram til staðfestingar.

  • Stjórn Hafn­ar­sam­bands Íslands nr. 475

    ​​Lagt fram til staðfestingar.

  • Heil­brigð­is­nefnd Aust­ur­lands nr. 186

    ​​Lagt fram til staðfestingar.

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 13:45.