Athugið að frestur til að skila inn athugasemdum er liðinn

Breyting á deili­skipu­lagi miðhluta hafn­ar­svæðis: kynning á breyt­ing­ar­til­lögu

Frestur fyrir athugasemdir

12. nóvember 2021

Sveit­ar­stjórn Vopna­fjarð­ar­hrepps auglýsir hér með tillögu að breyt­ingu á deili­skipu­lagi miðhluta hafn­ar­svæðis á Vopna­firði, skv. 1.mgr. 41. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010.

Brim hf., eigandi fisk­vinnsl­unnar á Vopna­firði, áformar að reisa nýja uppsjáv­ar­vinnslu á hafn­ar­bakka Vopna­fjarð­ar­hafnar. Ekki er gert ráð fyrir þeirri uppbygg­ingu í núgild­andi deili­skipu­lagi hafn­ar­svæð­isins. Stækk­unin er háð leng­ingu á lönd­un­ar­bryggj­unni og land­fyll­ingu en gert er ráð fyrir þeirri stækkun í deili­skipu­laginu.

Tillagan verður til sýnis á skrif­stofu Vopna­fjarð­ar­hrepps Hamra­hlíð 15 á Vopna­firði frá og með fimmtu­deg­inum 30. sept­ember nk. til föstu­dagsins 12. nóvember 2021 og á heima­síðu Vopna­fjarð­ar­hrepps á sama tíma.

Þeim sem telja sig eiga hags­muna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athuga­semdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athuga­semdum er til föstu­dagsins 12. nóvember 2021. Skila skal athuga­semdum til skipu­lags- og bygg­ing­ar­full­trúa Vopna­fjarð­ar­hrepps Hafn­ar­götu 4, 710 Seyð­is­firði eða á netfangið sigurdur.jonsson@efla.is til og með 12. nóvember 2021.

Hver sá, sem eigi gerir athuga­semdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest, telst samþykkur henni.