• Haust 2011 borði 1

  • Haust 2011 borði 2

  • Haust 2011 borði 3

  • Haust 2011 borði 4

11.05 2012 | 13:08

Legósafn

Í vetur fékk  Heiðbjört Antonsdóttir, kennari, þá hugmynd að skólinn færi í að safna peningum og kaupa legókubba og tæknilegó sem fellt yrði inn í verklega kennslu í skólanum. Hugmyndin varð að veruleika og hún fór að safna hjá félögum, stofnunum og fyrirtækjum hér á Vopnafirði með það að markmiði að við ættum gott safn þessara kubba. Með dugnaði söfnuðust yfir hálf milljón og keypti hún mikið og gott úrval tæknilegós og kubba og alls þess sem til þarf. Í morgun fengu krakkarnir að prófa og á síðan færði Heiðbjört skólanum, formlega,  legósafnið að gjöf. Bestu þakkir færum við Heiðbjörtu og einnig Hafþóri sem aðstoðaði hana við þessa vinnu.

10.05 2012 | 11:18

Námsmatsdagar í maí

Námsmat vorannar stendur frá þriðjudegi  22. maí til þriðjudags 29. maí. Skóli hefst þessa daga kl. 9 en gæsla er frá kl. 8. 1.-4. bekkur er til kl. 13.10;  5.-8. bekkur til kl. 12  og   9.-10. bekkur til kl. 11. Nemendur fá afhenta námsmatstöflu hjá umsjónarkennara.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir